Rapparinn 50 Cent olli gríðarlegri reiði á Netinu í dag og hefur verið sakaður um að nýta sér hörmungarnar í Beirút til að auglýsa áfengi sem hann tekur þátt í að markaðssetja og selja, frannska koníakið Branson.
Hann deildi myndbandinu af hrottalegri sprengingu sem átti sér stað í höfuðborg Líbanon, Beirút, í gær þar sem tugir manna töpuðu lífinu og þúsundir særðust. Með myndbandinu deildi hann textanum : „Hvað í ósköpunum voru þeir að geyma þarna?“. Sem er líklega eðlileg spurning, enda hefur komið á daginn að verulega hættulegt efni var geymt í miklu margni í vöruhúsi þarna á svæðinu sem er talið ástæða sprengingarinnar, en hins vegar notaði hann einnig myllumerkið #bransoncognac, sem hann notar til að auglýsa koníakið.
Glöggir netverjar hafa tekið eftir því að hann merkir allar sínar færslur á Instagram með þessu myllumerki en netverjum þótti það gífurlega óviðeigandi í samhengi við áðurnefndar hörmungar.
„Fólk lét lífið, sýndu smá nærgætni „- skrifar einn netverji.
„Tugir eru látnir. Sýndu smá samúð, ekki nota þetta til að auglýsa ömurlega áfengið þitt“ – skrifar annar.
https://www.instagram.com/p/CDe4RcjHmpq/