Áströlsk kona fékk svar frá karlmanni sem hún var að tala við, átta árum seinna. Sally deilir skjáskoti af samskiptum þeirra á vinsælli ástralskri Instagram-síðu og hefur færslan vakið mikla athygli.
Maðurinn sendi Sally skilaboð 17. júlí 2011 á Instagram. Hún svaraði honum nokkrum dögum seinna en fékk ekkert svar. Fyrr en nú, átta árum seinna.
Samtalið byrjaði á því að hann sendi: „Hæ glæsileg, hvað segirðu?“
Hún svaraði því nokkrum dögum seinna: „Hæ, ég er góð takk. Hvað hefurðu verið að gera?“
Átta árum seinna sendi hann mjög lélega afsökun:
„Hæ. Ég var bara að fá skilaboðin frá þér. Ég var að uppfæra símann. Langt síðan síðast.“
Eins og fyrr segir hafa samskipti þeirra vakið mikla athygli og hafa fjölmiðlar á borð við Daily Mail og News.au fjallað um málið. Hins vegar kemur hvergi fram hvort Sally hafi svarað manninum. Kannski var þetta upphafið af ástarsögu þeirra, hver veit.