Það hefur ekki farið framhjá neinum að Jennifer Lopez sé í hörkuformi.
Stórstjarnan varð fimmtug á síðasta ári en lætur það ekki stoppa sig að líta glæsilega út í bikiníi.
Hún deildi nýlega mynd af sér í hvítu bikiní með fylgjendum sínum á Instagram. Myndin hefur vakið mikla athygli en stjarnan deilir mjög sjaldan mynd af sér í bikiníi.
https://www.instagram.com/p/B8oz3papQjz/
„Slök og endunærð,“ skrifaði hún með myndinni.
Jennifer er tveggja barna móðir. Hún er þekkt fyrir að hafa stranga æfingarútínu og sést það greinilega á myndinni.
Fjölmargir hafa skrifað við færsluna og sagt að þeir sjái núna eftir öllum þeim dögum sem þeir slepptu því að mæta í ræktina.
Það eru aðeins nokkrar vikur síðan söngkonan sló í gegn í hálfleikssýningu Ofurskálarinnar með Shakiru.