Netmiðillinn The Cut fékk til sín tvær klámstjörnur í drykkjuleik. Leikurinn gengur út á það að svara spurningu, eða drekka. Mjög einfalt.
Klámstjörnurnar Addie Andrews og Robby Echo sitja fyrir svörum, eða drekka. Addie og Robby eru herbergisfélagar og hafa sofið saman. Þau spyrja síðan hvort annað spjörunum út, eins og hvernig þau byrjuðu í klámiðnaðinum.
Addie segist hafa verið strangtrúaður mormóni áður en hún byrjaði í klámi. Robby kynntist klámi í gegnum fyrrverandi kærustu.
Síðan tekur þátturinn áhugaverða stefnu þegar Robby hringir í mömmu sína og segir henni að hann leiki í klámi. Hún vissi það fyrir en hann hafði aldrei sagt henni það hreint og beint út.
Svo kemur spurningin stóra, hvað hafa þau sofið hjá mörgum. Robby segist hafa sofið hjá í kringum 335 manneskjum.
„Ef ég ætti að giska þá held ég um 35,“ segir Addie.
„Ég hef sofið hjá 300 fleiri en þú,“ segir Robby.
„Já þú hefur líka verið í klámi sex árum lengur en ég,“ segir þá Addie.
Horfðu á þau svara fleiri spurningum, eða drekka, í myndbandinu hér að neðan.