Jessica Simpson fagnaði 45 kg þyngdartapi sínu á samfélagsmiðlum á þriðjudaginn. Það eru sex mánuðir síðan Jessica eignaðist sitt þriðja barn, Birdie Mae.
„Sex mánuðir, 45 kg farin. Já ég var orðin 108 kg,“ skrifaði leikkonan á Instagram.
https://www.instagram.com/p/B2zTMbUA0YO/
Jessicu tókst þetta með aðstoð stjörnuþjálfaranum Harley Pasternak, sem er einnig þjálfari í raunveruleikaþætti Khloé Kardashian, Revenge Body.
„Ég er rosalega stoltur af þessari mögnuðu konu. Við höfum verið að vinna saman í 12 ár og hún er alltaf svo hlýleg, indæl, kurteis og tillitssöm,“ skrifaði Harley á Instagram.
„Og ofan á það allt saman hefur hún verið endalaust ólétt í langan tíma, nú hefur hún misst 45 kg og lítur unglegri út í dag heldur en daginn sem við kynntumst.“