Fyrrverandi barnastjarnan Aaron Carter segir að látin systir sín, Leslie Carter, hafi beitt sig kynferðisofbeldi í æsku. Hann hefur einnig ásakað bróður sinn, Nick Carter, um ofbeldi og að vera raðnauðgara (e. serial rapist).
Aaron greindi frá þessu á Twitter í gær.
Leslie er ein af fjórum systrum Aarons. Hún lést árið 2012, þá aðeins 25 ára gömul, eftir að hafa tekið inn of stóran skammt af lyfseðilsskyldu lyfi.
„Systir mín Leslie var með geðhvarfasýki og tók liþíum við því. Henni líkaði aldrei við það hvernig það lét henni líða og þegar hún tók það ekki inn gerði hún hluti sem hún ætlaði sér aldrei að gera og ég virkilega trúi því. Ég var tíu ára gamall…“ Skrifaði Aaron á Twitter.
„Systir mín nauðgaði mér frá því að ég var 10 ára þar til ég var 13 ára þegar hún var ekki á lyfjunum sínum.“
My sister Leslie suffered from bipolar and took lithium to treat it. She never liked the way it made her feel and when she was off of it she did things that she never meant to do I truly believe that. I was 10 years old….
— Aaron Carter (@aaroncarter) September 19, 2019
I have spent the last 15 years of my life going to therapy for abuse & rape, I’ve been through many different treatments, I have finally found the right treatment. I have had my ups and downs, I continue to work on my mental health and i will soon not have to take anything.
— Aaron Carter (@aaroncarter) September 19, 2019
my sister raped me from the age of 10 to 13 years old when she wasn’t on her medications and I was absused not only sexually by her but by my first two back up dancers when I was 8 years old. And my brother absused me my whole life.
— Aaron Carter (@aaroncarter) September 19, 2019
Aaron sagði bróðir sinn vera „raðnauðgara“ og að hann hafi beitt hann ofbeldi alla sína ævi. Nick, bróðir Aarons, er best þekktur sem einn meðlimur frægu strákahljómsveitarinnar Backstreet Boys.
„Og bróðir minn misnotaði mig allt mitt líf,“ skrifaði hann.
„Nú er komið að Nick [bróður mínum] að segja sannleikanum um hvað hann gerði við eina af stelpunum í fjölskyldunni. Fyrst að minn sannleikur er opinberaður og ég vona að allir þolendur kynferðisofbeldis eða nauðgunar finni frið og réttlæti.“
Now it’s nicks turn to tell the tell the truth of what he did to one of the girls in my family. Since my truth is all out there and I hope all survivors of assault or rape find peace and justice.
— Aaron Carter (@aaroncarter) September 19, 2019
I’m not stopping the truth. And you’re all scared. Cause you know it. YOU KNOW IT. I CANT LIVE MY LIFE KNOWING THIS HAPPENED TO SLL THESE WOMEN AND IT BEIJG MY ABUSIVE BROTHER. After what he did to Paris I should’ve never trusted him and me that day. He beat me up in front of her https://t.co/uTILlfIxeM
— Aaron Carter (@aaroncarter) September 19, 2019
Í öðru tísti segir hann Nick vera raðnauðgara (e. serial rapist).
„Málin voru felld niður. Hefurðu einhvern tíman heyrt um spillt kerfi eða að frægt fólk noti pening og völd til að þagga niður í þolendum?!“ Skrifaði Aaron á Twitter um bróður sinn þegar hann var spurður út í af hverju hann færi ekki með málið til FBI.
Hann segir einnig Nick hafa beitt Paris Hilton ofbeldi en fer ekki nánar út í það.
I’m not stopping the truth. And you’re all scared. Cause you know it. YOU KNOW IT. I CANT LIVE MY LIFE KNOWING THIS HAPPENED TO SLL THESE WOMEN AND IT BEIJG MY ABUSIVE BROTHER. After what he did to Paris I should’ve never trusted him and me that day. He beat me up in front of her https://t.co/uTILlfIxeM
— Aaron Carter (@aaroncarter) September 19, 2019
Listen. @ParisHilton knows what’s going on. Trust me. She doesn’t need to be dragged into anything. Cause my truth is my truth and I witnessed the abuse to Paris from my brother. I was there. https://t.co/wrEv3l38en
— Aaron Carter (@aaroncarter) September 19, 2019
Aaron rifjar upp atvik á Kids Choice Awards þegar bróðir hans nefbraut hann og hann segir þetta ekki vera eina skiptið sem hann gerði það.
I was 13 look at my brothers face before he broke my nose with a pie at the kids choice awards during my acceptance speech. ? hes bullying these women with power and money and now I’m back. And powerful and welsthy and healthy. Nick cannot stop his own reckoning https://t.co/vWRES2KGVY pic.twitter.com/x8HdrMwJWY
— Aaron Carter (@aaroncarter) September 19, 2019
Oh he broke my nose several times. #MySideToo and it’s been in front of all of you backstreet boy fans and you’ve allowed it. And knew. https://t.co/b9buWOnvlZ
— Aaron Carter (@aaroncarter) September 19, 2019
Nick hefur ekki svarað ásökunum Aarons.
Aaron aflýsti tónleikaferðalagi fyrir nokkrum dögum og opnaði sig um andleg veikindi sín. Hann sagðist glíma við fjölda greininga eins og kvíða, þunglyndi, persónuleikaröskun og geðklofa.
Nick fékk nýlega nálgunarbann á bróður sinn og sagði að Aaron hafi sagt honum að hann væri að hugsa um að drepa ólétta eiginkonu hans og ófætt barn hans.
Nick sagði lögreglu að Aaron ætti sex skotvopn. Aaron hefur þurft að skila tveimur skotvopnum til lögreglu en hann sagði við TMZ að hann væri enn þá með skammbyssu og haglabyssu sér til verndar.