fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024

10 hlutir sem þú vissir líklega ekki um kvenlíkamann

Erla Dóra Magnúsdóttir
Sunnudaginn 1. september 2019 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Harmónikuleggöng, lek brjóst, lekandi blöðrur og misstór brjóst eru eðlilegur hluti kvenlíkamans – Konur eiga til að vera feimnar um líkama sína og leita því síður svara við spurningum eða aðstoðar heilbrigðisstarfsfólks. DV fékk aðstoð sérfræðinga til að leiða konur, og aðra, í sannleikanum um kvenlíkamann.

 

    1. Taugaröskun – Einkenni taugaröskunarinnar ADHD birtist oft með öðrum hætti hjá stúlkum en drengjum og getur það leitt til þess að stúlkur séu vangreindar fram eftir aldri. Einkenni þeirra eru ekki þessi klassísku ofvirknieinkenni sem flestir tengja við ADHDADHD-stúlkur geta verið meira inn í sig, dreymnar, feimnar, óskipulagðar og fleira. Á meðan strákar eru líklegir til að beina reiði og gremju út á við þá eru stúlkur líklegri til að beina henni inn á við sem getur leitt til þunglyndis, kvíða og slæmrar sjálfsmyndar. Þær tala gjarnan mikið en eru hins vegar ekki jafn fyrirferðarmiklar og ADHD-drengir.
    2. Skynfæri – Samkvæmt rannsóknum þá geta konur betur greint í sundur liti heldur en karlmenn og eru þar að auki ólíklegri til að fæðast litblindar. Konur eru gjarnan fíngerðari en karlar og því með minni fingur. Þetta leiðir til þess að konur eru oft með næmara snertiskyn en karlar. Þær hafa einnig næmara lyktar- og bragðskyn en karlmenn.
    3. Svitalykt – Konur ilma og getur styrkur líkamslyktar breyst í takt við hormónabreytingar kvenna. Þungaðar konur og nýbakaðar mæður taka gjarnan eftir því að líkamslykt þeirra hefur breyst, jafnvel orðið verri og sterkari.
    4. Fjölbreytileiki brjósta -„Það er töluverður breytileiki í brjóstunum og þau geta litið mismunandi út eftir því hvar þú ert á hormónatímabili í lífinu, eftir því hver líkamsvöxtur þinn er o.fl. Eins eru hægra og vinstra brjóst misstór,“ segir Sigga Dögg.
    5. Útferð frá brjóstum – Úr geirvörtum kvenna getur komið útferð þótt kona sé hvorki með barn á brjósti né barnshafandi. Í flestum tilvikum er slík útferð ekki áhyggjuefni en konum getur þó eðlilega brugðið. Útferðin getur verið dökkbrúnleit, gulleit og grænleit og er slík almennt talin saklaus. Sé útferðin hins vegar glær eða blóðug þá er rétt fyrir konu að hafa samband við lækni.
    6. Öðruvísi hjartaáfall – Einkenni hjartaáfalls geta verið önnur hjá konum en körlum. „Oftast er talað um að konur upplifi kannski ekki brjóstverk á sama hátt og karlar. Þær eru langflestar þó sem fá einhvern brjóstverk en þær upplifa líka frekar mæði, stingandi verk eða mikla þreytu frekar heldur en þennan klassíska verk sem leiðir upp í kjálka og út í handlegg. Konur eru því kannski líklegri til að leita síður eftir læknisaðstoð,“ segir Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir hjartalæknir. „Hjartaáföll hjá konum eru líka aðeins öðruvísi. Þær fá ekki sjúkdóma í jafn margar kransæðar og karlmenn og eru ekki með jafn útbreiddan sjúkdóm. Þær fá frekar bráðahjartabilun eins og það sem kallað er „broken heart“ eða harmslegill.“
    7. Hraðari hjartsláttur – Að sögn Þórdísar Jónu slá hjörtu kvenna ögn hraðar en karla.
    8. Teygjanleg píka – Píkan er mislöng eftir því hvort hún er í hvíldarstöðu eða örvuð, svolítið eins og harmónika. Sigga Dögg kynfræðingur segir margar konur ekki gera sér grein fyrir þessu. „Eins vita margir ekki að þarna er legháls sem lokar fyrir og kemur í veg fyrir að t.d. túrtappi eða álfabikar fari á flakk. Leggöngin eru bogin svo það er ekki hægt að stinga þangað upp reglustiku til að mæla lengdina en almennt eru þau um 10 cm, en þau gefa eftir bæði á lengdina og hliðina við örvun.“ Píkan er líka sjálfhreinsandi, svo það er óþarfi að þrífa hana með sápu. Sigga Dögg segir að sápuþvottur að neðan geti jafnvel leitt til ójafnvægis sem skapi hættu á sveppasýkingum.
    9. Skapabarmar – Skapabarmar skiptast í innri og ytri skapabarma. Útlit skapabarma, þá einkum þeirra ytri, er persónubundið og fjölbreytileikinn mikill. „Margar konur pæla mikið í hvort skapabarmar þeirra séu óeðlilegir, óeðlilega langir eða óeðlilega síðir,“ segir Sigga Dögg.
    10. Þvagleki – Þvagleki er mjög algengt heilsufarsvandamál meðal kvenna. Samkvæmt upplýsingum af vef Landlæknis er þvagleki gjarnan mikið feimnismál sem konum reynist erfitt að brydda upp á við heilbrigðisstarfsfólk. Þvagleki getur átt sér stað við áreynslu, og orsakast þá gjarnan af slöppum grindarbotnsvöðvum eftir meðgöngu og fæðingu. Konum sem glíma við áreynsluþvagleka er bent á að gera grindarbotnsæfingar, en slíkar æfingar hafa skilað góðum árangri. Á vef Landlæknis segir: „Ekki lifa með þvagleka án þess að leita aðstoðar […] Fólki er eindregið bent á að ráðfæra sig við heimilislækni sinn eða hjúkrunarfræðing, því það er engin ástæða til að þjást í laumi.“
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 12 klukkutímum

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

KSÍ skoðar að fara í herferð vegna veðmálafíknar

KSÍ skoðar að fara í herferð vegna veðmálafíknar
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Arsenal og City gætu verið á leið í stríð um miðjumanninn öfluga

Arsenal og City gætu verið á leið í stríð um miðjumanninn öfluga
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Snorri furðar sig á Byggðastofnun – Sagður gera lítið úr þeim sem ekki tala íslensku

Snorri furðar sig á Byggðastofnun – Sagður gera lítið úr þeim sem ekki tala íslensku
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Bikarinn rúllar af stað í kvöld og nú eru stórliðin með – Svona er dagskráin

Bikarinn rúllar af stað í kvöld og nú eru stórliðin með – Svona er dagskráin
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Össur segir Jóni Gnarr að hætta að væla

Össur segir Jóni Gnarr að hætta að væla

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.