Kylie Jenner verður 22 ára eftir nokkra daga. Eins og hún hefur gert hvert ár, eftir að hún stofnaði Kylie Cosmetics, gefur hún út sérstaka afmælislínu.
Kylie fékk Khloé Kardashian til að nota nýju snyrtivörulínuna með sér fyrir framan myndavél. En þetta er ekki eitthvað venjulegt snyrtivörumyndband, heldur eru þær systur að taka skot af tekíla á meðan þær farða sig.
Samtals taka þær átján skot og eru orðnar vel hressar í lokinn.
Sjáðu myndbandið hér að neðan.