Hún birtir reglulega myndir af sér og Frans, eiginmanni sínum, á Instagram síðu sinni og lítur út fyrir að þau séu að njóta ferðarinnar til botns. Þau eru stödd í borginni Cancún í Mexico í góðu yfirlæti, í dag voru þau til að mynda að spila tennis saman.
Ekki er þó allt eintómt sólskin og fjör í Mexico en Sólrún setti í dag mynd á Instagram story hjá sér í dag þar sem hún tjáði fylgjendum sínum að hún væri með gubbupest.
Þar sem gubbupest getur verið tengd við óléttu hefðu kjaftasögurnar geta verið fljótar að fara af stað en eflaust gat einhverja grunað að Sólrún bæri barn undir belti.
Sólrún blés þó á kjaftasögurnar áður en þær gátu myndast stuttu seinna með annarri mynd á Instagram. Þar sagðist hún ekki vera ólétt að svo stöddu.
„Til að koma í veg fyrir allan misskilning þá er ég ekki ólétt, heldur next level gubbupest!“