Afbrýðisemi getur kallað fram það versta í fólki. Zoe Scholefield, frá West Yorkshire, deildi nýlega skilaboðum frá fyrrverandi kærasta sínum.
Hann sendi henni tólf reglur sem hún átti að fylgja á meðan hún var úti að skemmta sér með vinkonum sínum. Svo hélt hann framhjá henni.
Meðal þess sem Zoe átti að gera var að taka mynd af fötunum sínum svo hann gæti samþykkt þau, bara tala við aðrar stelpur og að dansa ekki eins og drusla.
Zoe deildi skjáskoti af skilaboðunum á Twitter og skrifaði með: „Fyndið hvernig minn fyrrverandi sendi mér skilaboð eins og þessi, og dirfðist til að halda framhjá mér.“
Yfir 34 þúsund manns hafa líkað við tíst Zoe.
Reglurnar tólf
Ekki dansa eins og drusla
Ekki vera of full
Engir strákar og ef einhver kemur upp að þér og talar við þig, segðu þeim að þú átt kærasta
Vertu alltaf að fylgjast með drykknum þínum og passaðu að enginn setur eitthvað i hann
Vertu með X eða Y allan tímann [vinkonur hennar], en ekki Z. En eftir gærkvöldið vertu mest með X.
Enginn nema þið fjórar í herberginu ykkar, fyrir utan Q, en hann má ekki sofa þarna.
Þú mátt ekki fara í herbergi einhvers annars.
Þú segir mér allt sem gerist og vertu tilbúin að útskýra ýmislegt
Sendu mér alltaf myndir af því sem þú ætlar að klæðast, bæði að framan og aftan, svo ég geti samþykkt það og sagt hvort mér finnst þú ættir að klæðast því eða ekki.
Þó svo að ég sé sofandi, sendu mér samt skilaboð til að segja mér hluti svo ég geti séð þá þegar ég vakna.
Ef þú hefur tíma til að hringja í mig láttu mig vita á undan
Ef þú getur þá vill ég myndband af herberginu áður en þú ferð að sofa til að sanna að enginn annar er þar og þú sért að fara að sofa.
Það er óhætt að segja að þessi listi kveiki á mörgum viðvörunabjöllum.
Netverjar á Twitter voru skelfingu lostnir yfir reglunum og sagði einn:
„Þinn fyrrverandi þarf að vera lagður inn á geðdeild.“
Annar sagði: „Vá, fyrrverandi þinn er eitraður, hættulegur og siðblindur.“