fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024

Líkaminn getur gert viðvart 1 mánuði fyrir hjartaáfall: Þessi einkenni ættu allir að þekkja

Ritstjórn Bleikt
Miðvikudaginn 10. júlí 2019 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Árlega látast margir af völdum hjartaáfalls en hjartaáföll eru meðal algengustu dánarorsakanna á Vesturlöndum. En allt að mánuði áður en hjartaáfall ríður yfir byrjar líkaminn að senda frá sér ákveðinn aðvörunarmerki og þau getur að sjálfsögðu verið gott að þekkja.

Þetta kemur fram á vefsíðunni Gutfuerdich.co. Þar eru nokkur atriði talin upp sem eru sögð vera viðvörunarmerki um að eitthvað sé að hjartanu.

1. Þreyta. Það er eðlilegt að vera þreyttur öðru hvoru en ef þú örmagnast af hversdagslegum hlutum eins og að versla inn getur verið góð hugmynd að fara til læknis. Það sama á við ef þú verður móð(ur) við minnháttar áreynslu.

2. Þrýstingur fyrir brjósti. Eitt algengasta merkið um yfirvofandi hjartaáfall er þrýstingur fyrir brjósti. Þessi þrýstingur finnst ekki endilega bara í brjóstinu heldur getur hann einnig fundist í handlegg, yfirleitt þeim vinstri, en einnig getur fólk fundið fyrir þrýstingi í hálsinum innanverðum, hnakkanum, kjálka, baki eða maganum.

3. Andnauð. Við hjartaáfall dragast æðarnar saman en það hefur í för með sér að lungun fá ekki lengur nægilega mikið blóð. Þess vegna getur fólk fundið fyrir andnauð áður en það fær hjartaáfall. Ef fólk á skyndilega erfitt með andardrátt er full ástæða til að leita til læknis.

4. Örmögnun. Ef þér finnst þú vera veikburða og örmagna getur það verið vegna þess að vöðvarnir fá ekki lengur nægilega mikið blóð til sín. Það getur verið merki um yfirvofandi hjartaáfall.

5. Mikill sviti og svimi. Ef maður svitnar mikið getur það verið merki um vandræði með hjartað. Svimi getur einnig verið vegna þess að of lítið blóð berst til heilans.

6. Kvef og inflúensa. Nú er árstími kvefs og flensu runnin upp og ekkert óeðlilegt við að fá annað hvort eða hvoru tveggja. En það eru kannski ekki allir sem vita að einkenni kvefs geta verið merki um yfirvofandi hjartaáfall. Það er rétt að hafa það í huga, sérstaklega ef fólk er með eitthvert áðurgreindra einkenna eftir því sem segir í umfjöllun Gutfuerdich.co.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Hvalur sprakk í tætlur

Nýlegt

433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Nýtti sér úrslit vikunnar og skaut fast á gagnrýnendur

Nýtti sér úrslit vikunnar og skaut fast á gagnrýnendur
Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum
Hvalur sprakk í tætlur
Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Dóttir manns sem var ranglega sakaður um að hafa brotið gegn henni vill vita sannleikann – „Faðir minn jafnaði sig aldrei á þessu“

Dóttir manns sem var ranglega sakaður um að hafa brotið gegn henni vill vita sannleikann – „Faðir minn jafnaði sig aldrei á þessu“
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Var „í sjokki“ eftir að hann kom til landsins í desember – „Fyrsta skrefið í því að hugsa um Ísland sem möguleika“

Var „í sjokki“ eftir að hann kom til landsins í desember – „Fyrsta skrefið í því að hugsa um Ísland sem möguleika“
EyjanFastir pennar
Fyrir 7 klukkutímum

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni
Pressan
Fyrir 15 klukkutímum

Skilningarvitin hætta að starfa í ákveðinni röð þegar fólk er að deyja

Skilningarvitin hætta að starfa í ákveðinni röð þegar fólk er að deyja
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Opinberar smáatriðin í stórfurðulegum samning sem hann og kærastan hafa gert með sér

Opinberar smáatriðin í stórfurðulegum samning sem hann og kærastan hafa gert með sér
Pressan
Fyrir 17 klukkutímum

Fór að leita uppi draugahús á Ítalíu með kærastanum – Endaði líf sitt sem „mannleg fórn“

Fór að leita uppi draugahús á Ítalíu með kærastanum – Endaði líf sitt sem „mannleg fórn“
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Tveir leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni á blaði hjá Arsenal

Tveir leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni á blaði hjá Arsenal
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Allir þrír leikmenn klárir fyrir United

Allir þrír leikmenn klárir fyrir United
Eyjan
Fyrir 18 klukkutímum

Trúnaði aflétt af leynilegu minnisblaði um meint spillingarmál – „Hlýtur að teljast vafasamt“

Trúnaði aflétt af leynilegu minnisblaði um meint spillingarmál – „Hlýtur að teljast vafasamt“
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum
Stöð 2 lækkar verð

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.