Þeir sem sleikja píkur eru oft mjög metnaðarfullir og vilja gera vel. Það tekst því miður ekki alltaf… og lengi má gott bæta. Hér eru átta ráð fyrir ykkur sem hafið áhuga á að verða betri í þessari mikilvægu iðju sem flestar konur elska!
1. Sleiktu ALLA píkuna. Ekki láta duga að hamast á snípnum. Sleiktu barmana, nárana, lærin, kviðinn. Láttu eins og píkan sé ís í brauðformi sem er að leka út um allt.
2. NOTAÐU tunguna. Ekki gera hana grjótharða og láta þar við sitja. Tungan er magnaður vöðvi, eða vöðvabúnt, og hægt er að breyta viðkomunni með því hvernig þeir átta vöðvar sem tilheyra henni eru notaðir. Gerðu tunguna flata og breiða, reyndu að sleikja eins mikið yfirborð og hægt er… og gerðu það aftur og aftur…
3. Notaðu munninn allan – tungu, tennur og varir. Kysstu, sjúgðu, nartaðu, sleiktu.
4. Fylgstu með viðbrögðum hennar. Stynur hún? Ýtir hún mjöðmunum á móti munni þínum? Grípur hún um hausinn á þér og þrýstir honum nær? Það eru merki um að það sem þú ert að gera sé gott.
5. Notaðu orðin þín. Ekki segja bara „er þetta gott?“ og ekkert meira. Notaðu orðin til að æsa hana ennþá meira. Segðu henni hvað þér finnst gott að sleikja hana, hvað þér finnst píkan hennar girnileg/falleg/dásamleg/æsandi/ilmandi. Segðu henni að það sé æsandi að finna hana verða æsta og færast í átt að fullnægingu… eða eitthvað annað sjóðheitt sem þér dettur í hug.
6. Vertu skapandi í stellingum. Það eru sko til fleiri stellingar en að hún liggi á bakinu og þú á milli fótanna á henni. Bjóddu henni til dæmis að setjast klofvega á andlitið á þér þegar þú liggur á maganum (ef hún er smeyk við að kremja þig eða kæfa er ágætt að stíga með bogið hné í annan fótinn – svona eins og fótboltamaður í fremstu röð á liðsmynd). Í þeirri stellingu er líka auðveldara fyrir margar konur að fá saflát, eða skvörta, eins og það er kallað. Ef hún gerir það skaltu endilega láta hana vita hvað þér finnst safinn hennar bragðgóður. Fáðu líka að sleikja hana aftan frá, þegar hún liggur á fjórum fótum – það finnst mörgum konum undursamlega gott.
7. Fáðu að sleikja hana við og við í ástarleiknum. Ekki falla í formúlugryfjuna – sleikur, káf, brjóstahnoð, kynfærasleikingar, samfarir (ef annað ykkar er með tippi), svefn. Ef hún fær fullnægingu á einhverjum tímapunkti gæti henni þótt dásamlegt að láta sleikja sig blíðlega á eftir… og jafnvel gæti það fleygt henni fram af brúninni aftur.
8. Gerðu ýmislegt annað en að nota munninn á meðan þú sleikir hana. Notaður fingur og hendur óspart. Nuddaðu leggöngin og lærin innanverð, leiktu við geirvörturnar og strjúktu á henni maga og mjaðmir.