Ísland hefur fest sig rækilega í sessi sem áfangastaður um áramótin, enda hafa ófáar Hollywood-stjörnur fagnað nýja árinu hér á landi.
Hollywood-leikstjórinn Quentin Tarantino heillaðist af áramótunum á Íslandi árið 2006 og kallaði þau „stærstu flugeldasýningu í heimi.“ Hann eyddi næstu áramótum einnig hér á landi. „Ég get næstum ekki ímyndað mér áramótin annars staðar héðan af. Því Íslendingar drekka eins og brjálæðingar öllu jafna en á gamlárskvöld missa þeir gjörsamlega vitið – sérstaklega konurnar og þær drekka ákaft,“ sagði Tarantino í spjallþætti Davids Letterman á sínum tíma.
Þá var rokkarinn Sting staddur á Íslandi þegar árið 2013 gekk í garð, ásamt eiginkonu sinni Trudie Styler, börnunum þeirra fjórum og tveimur börnum Sting úr fyrra hjónabandi. Fjölskyldan dvaldi í Stóru Mörk undir Eyjafjöllum og fengu þjón og kokk til að reiða fram hátíðarmatinn.
Meghan Markle, hertogaynjan af Sussex og fyrrverandi leikkona, var stödd á Íslandi ásamt vinum sínum þegar árið 2016 gekk í garð. Þetta voru seinustu áramótin hennar sem einhleyp kona en aðeins nokkrum mánuðum síðar hófst ástarsamband hennar og Harrys Bretaprins.
Skoski stórleikarinn Gerard Butler dvaldi á Íslandi um síðustu áramót og sást meðal annars til hans í karókípartíi á Tapasbarnum þar sem hann lék á als oddi. Annar þekktur leikari, hinn bandaríski Danny McBride, var einnig staddur hér á landi um síðustu áramót en á sama tíma hélt hann upp á 42 ára afmæli sitt, þann 29. desember. Leikarinn birti meðal annars áramótakveðju á Instagram þar sem hann var staddur í Bláa lóninu en hann mun hafa dvalið ásamt fjölskyldu sinni í glæsivillu í Grímsnesi.