fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024

Jólakort ríkra og frægra – Óborganlegt fótósjopp

Ritstjórn Bleikt
Sunnudaginn 22. desember 2019 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þótt jólakort séu á útleið í bréfformi þá eru enn fjölmargir sem búa til jólakort með mynd af fjölskyldunni. Með tilkomu samfélagsmiðla er nefnilega ekkert því til fyrirstöðu að láta jólakveðjuna lifa að eilífu á stafrænu formi. Fræga og fallega fólkið hefur verið duglegt að senda jólakort í aðdraganda hátíðanna – hér eru nokkur góð.

Beint frá bónda

Leikkonan Jennifer Garner fékk lítið prentfyrirtæki í heimabæ sínum, Charleston í Vestur-Virginíu, til að sjá um jólagjafasmíðina í ár. Huggulegt og retró kort.

Sker sig úr

Ofurhjónin Kim Kardashian og Kanye West láta sitt ekki eftir liggja þegar kemur að jólakortum. Þau stilltu sér upp með börnum sínum, North, Saint, Chicago og Psalm – börnin öll í gráum jogginggöllum í stíl við móðurina, faðirinn með Jesúskomplexa í hvítu. Nema hvað að North litla var fótósjoppuð inn á kortið.

Krúttlegt

Söngkonan LeAnn Rimes og eiginmaður hennar, leikarinn Eddie Cibrian, lét smella af sér mynd með sonum Eddie; Mason og Jake, sem og fjölskylduhvolpinum Fleetwood.

Afrek

Það er eiginlega magnað að leikkonan Tori Spelling og eiginmaður hennar, Dean McDermott, hafi náð að smala barnaskaranum saman á mynd og verið öll í sömu litapallettu. Á myndinni ásamt hjónunum eru þau Stella, Hattie, Liam, Finn og Beau.

Sumarlegt jólakort

Fyrirsætan Denise Richards og eiginmaður hennar til eins árs, Aaron Phypers, halda kortinu stílhreinu. Á myndinni eru þau og dætur Denise, þær Sam, Lola og Eloise, og öll klædd í hvítan topp og gallabuxur.

Grænt og vænt

Kyle Richards, stjarnan í Real Housewives of Beverly Hills, klæddi sig upp í grænt með eiginmanni sínum, Mauricio Umansky, og dætrunum Farrah, Alexia, Sophia og Portia.

Alltaf sami grínarinn

Jason Biggs er hvað þekktastur fyrir að kitla hláturtaugarnar í American Pie-myndunum. Kort hans og eiginkonu hans til rúms áratugar, Jenny Mollen, er ansi spaugilegt. Börnin Sid og Lazlo eru í aukahlutverki sem og hundurinn Gina.

Grafalvarlegt mál

Hönnuðurinn Rachel Zoe og eiginmaður hennar, Rodger Berman, létu smella af sér mynd á góðgerðarsamkomu fyrr í mánuðinum. Synir þeirra, Skyler og Kaius, fengu að sitja í kjöltu jólasveinsins á meðan móðurinni stökk ekki bros.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Staðfestir að hann sé ekki hættur – Endurkoma á næstunni

Staðfestir að hann sé ekki hættur – Endurkoma á næstunni
Fókus
Fyrir 6 klukkutímum

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Fær óvænt tækifærið aðeins 34 ára gamall

Fær óvænt tækifærið aðeins 34 ára gamall
Fókus
Fyrir 10 klukkutímum

Anne Hathaway þurfti að slumma tíu menn – „Þetta hljómaði viðbjóðslega“

Anne Hathaway þurfti að slumma tíu menn – „Þetta hljómaði viðbjóðslega“
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Ten Hag hreinskilinn: ,,Hann á skilið fleiri mínútur“

Ten Hag hreinskilinn: ,,Hann á skilið fleiri mínútur“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.