Playboy fyrirsætan Francia James deildi frekar furðulegu myndbandi þar sem hún sést mjólka kú og drekka síðan mjólkina.
Sjáðu myndbandið hér að neðan.
https://www.instagram.com/p/B50ULO3ltdg/
Francia er með 3,2 milljón fylgjendur á Instagram og hafa yfir 800 þúsund manns horft á myndbandið á einum sólarhring.
Myndbandið hefur skipt fólki í fylkingar. Fjölmargir dásama myndbandið og segir meira að segja einn karlmaður að þetta sé „það heitasta“ sem hann hefur séð.
En svo eru það þeir sem benda á hversu hættulegt þetta getur verið og sökuðu nokkrir fyrirsætuna um að „gera hvað sem er fyrir frægð.“
Hvað segja lesendur?