Ótrúlegt myndband af móður sprauta brjóstamjólk yfir gesti á danshátíð hefur gengið eins og eldur í sinu um netheima. Ljóshærð kona sést dansa í svörtum sundbol og eftir smá stund tekur hún upp á því að sprauta brjóstamjólk. Það er óhætt að segja að það sé kraftur í bununni og heyrist í einum manni í myndbandinu hrópa: „Ó sjit, Jesús Kristur!“
Myndbandið var tekið upp á EDM rave danshátíð í suður Kaliforníu. So Cal Edm Events deildi því á Twitter síðu sína og hafa yfir 10 milljón manns horft á það. Horfðu á það hér á neðan.
Ya know it was only a matter of time before the 4K resolution came to light…. I’m honestly speechless lol pic.twitter.com/txNox0jHwx
— So Cal Edm Events (@SCEE_13) October 8, 2019