Gildir 3. – 9. nóvember
Hrútur
21. mars–19. apríl
Þú ert að spá mikið í einhverja langtímafjárfestingu og í þessari viku tekurðu loksins ákvörðun um hvort eigi að hrökkva eða stökkva. Ef þú ert undir það búin/n að leggja mikið á þig og skera útgjöld við nögl næstu mánuði, jafnvel ár, þá getur þessi fjárfesting orðið afar gjöful. Þú skalt hins vegar ekki stökkva ef þú ert ekki tilbúin/n að færa miklar fórnir á leiðinni að takmarkinu.
Naut
20. apríl–20. maí
Þú upplifir köfnunartilfinningu í sambandi sem þú ert í. Þetta gæti verið ástarsamband sem er nýtt af nálinni eða samband við vin eða kunningja. Þú upplifir að þú hafir gefið og gefið og gefið af þér en fengið lítið sem ekkert til baka. Ekki kasta þessu sambandi á glæ alveg strax heldur reyndu að miðla málum og koma hreint fram.
Tvíburar
21. maí–21. júní
Ekki lofa þér í of mikið þessa dagana. Kíktu frekar yfir verkefni vikunnar og athugaðu hvort þú hefur tíma. Það er einhver uppreisnarseggur í þér og þig langar að brjóta allar reglurnar. Gerðu það hins vegar á skynsamlegan og heilbrigðan hátt. Eyddu peningi í þig sjálfa/n og í eitthvað sem lætur þér líða vel í líkama og sál.
Krabbi
22. júní–22. júlí
Krabbinn þarf meira en yfirborðshjal til að vera hamingjusamur. Krabbinn þarf áskoranir, ný verkefni og djúpa tengingu við fólk. Þú stendur þig allt í einu að því að sætta þig við það sem er á yfirborðinu og það líkar þér ekki. Því heldur þú nú á vegferð til að leita að því sem leynist undir yfirborðinu í þínum nánu samböndum og þetta er spennandi ferðalag.
Ljón
23. júlí–22. ágúst
Þú leggur mikið upp úr því þessa dagana að finna jafnvægi á milli vinnu og heimilis og það gengur vægast sagt illa. Það er of mikið að gera hjá þér í vinnunni og annríkið heima fyrir ber þig stundum ofurliði. Því spáir þú mikið í það þessa vikuna hvort þú getir sagt upp vinnunni og unnið sjálfstætt. Það gæti verið eitthvað fyrir þig, ef þú nærð að temja þér öguð vinnubrögð.
Meyja
23. ágúst–22 .sept
Þú ert í mikilli leit að tilgangi þínum í þessu lífi um þessar mundir. Hvað þýðir hitt og hvað þýðir þetta? Þú bara nærð ekki að finna út úr því og það veldur þér hugarangri. Þú þarft að finna eitthvað sem kveikir í þér lífsneista og það gæti verið jafn einfalt og að lesa bók eða skrá þig á námskeið til að opna skilningsvitin upp fyrir nýrri upplifun.
Vog
23. sept–22. okt
Þú ert í bullandi uppsveiflu þessa dagana og sjarminn drýpur af þér. Sjálfstætt starfandi vogir ættu að fara í grófan niðurskurð og henda út öllum kúnnum sem valda meiri ama en ánægju. Þú finnur fyrir nýjum neista í vinnu ef þú ert á vinnustað og dembir þér ofan í nýtt verkefni sem gefur þér mikla lífsfyllingu.
Sporðdreki
23. okt–21. nóv
Það er manneskja í þínu lífi sem þú hefur mikið litið upp til en allt í einu veldur hún þér miklum vonbrigðum. Svo miklum að þú nærð ekki að horfa framhjá því. Þú þarft að komast í burtu og skipuleggur ferð til að hreinsa hugann og hjartað af alls kyns leiðindum sem hafa plagað þig síðustu vikur.
Bogmaður
22. nóv–21. des
Þú rekur þig á marga veggi í vinnunni og veist ekki nákvæmlega hvernig þú átt að brjóta þá niður. Getur verið að þú sért á bandvitlausum stað í lífinu eða er þetta tímabundið ástand? Þetta þarft þú að spá í og horfa einnig gagnrýnin/n á þig sjálfa/n. Hugsanlega gæti kröftum þínum verið betur varið annars staðar.
Steingeit
22. des–19. janúar
Það er mikill leikur í þér í þessari viku og það er einhver manneskja sem heillar þig mjög á rómantíska sviðinu. Heillar þig á hátt sem þú hefur ekki upplifað áður. Þú skalt samt varast að fara út fyrir boxið og þinn eigin karakter og fremur taka upplýsta ákvörðun um hvort þú vilt gera eitthvað meira með þessar tilfinningar eða láta þær líða hjá.
Vatnsberi
20. janúar–18. febrúar
Þú þarft að taka á honum stóra þínum í vinnunni og vinna að settu markmiði í hópi, eitthvað sem reynist þér ávallt mjög erfitt. En markmiðið er göfugt og þessi hópvinna mun gefa svo margt af sér, meira en þig hefði nokkurn tímann grunað. Bíddu bara, þinn tími í metorðastiganum mun koma.
Fiskar
19. febrúar–20. mars
Það er mjög mikilvægt fyrir þig að segja meiningu þína og ekki halda aftur af þér. Vinnufélagi eða náinn vinur kemur til þín og biður um ráðleggingar. Segðu þessari manneskju sannleikann. Vissulega getur sannleikurinn verið sár en til að virkilega hjálpa þessari manneskju í neyð þarftu að vera fullkomlega hreinskilin/n.
3. nóvember – Líneik Anna Sævarsdóttir stjórnmálakona, 55 ára
4. nóvember – Einar Ben athafnamaður, 37 ára
5. nóvember – Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir mæjónesdrottning, 41 árs
6. nóvember – Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, ritstjóri Stundarinnar, 40 ára
7. nóvember – Ásgrímur Már Friðriksson tískugúrú, 37 ára
8. nóvember – Toshiki Toma prestur, 61 árs
9. nóvember – Hörður J. Oddfríðarson, fyrrverandi formaður Sundsambands Íslands, 55 ára