Hluti af því að vera áhrifavaldur er að hafa samband við fyrirtæki og leita eftir samstarfi. Út á það gengur leikurinn að miklu leyti. Fyrirtæki hafa sjálf oft sambönd við áhrifavalda og bjóða vörur í skiptum fyrir kynningu á samfélagsmiðlum.
„En það sem er ekki hluti af þessum bransa er að hafa samband við lítil fjölskyldufyrirtæki og neyða þau til að gefa þér fría hluti,“ segir Charlotte Dobre, þáttastjórnandi netmiðilsins InformOverload. Hún segir að fjöldi „sjálfskipaðra“ áhrifavalda heimta fría hluti frá fólki sem hefur varla efni á því að lifa af.
Fyrir stuttu fjölluðum við um myndband frá InformOverload þar sem farið var yfir tíu áhrifavalda sem líta ekkert út eins og á myndunum sínum. Það vakti mikla athygli og fjöllum við nú um annað myndband frá þeim.
Hún nefnir tíu áhrifavalda sem vildu eitthvað frítt og það komst upp um þá. Horfðu á myndbandið hér að neðan.