Undanfarin ár hefur það tíðkast að halda veislu til að opinbera kyn ófædds barns. Foreldrarnir eru þá til dæmis með blöðru og sprengja hana, og úr blöðrunni kemur bleikt eða blátt konfettí. Bleikur litur táknar stelpu og blár stráka.
Sumir eru með köku og svo segir liturinn inn í kökunni til um kyn barnsins. Við höfum einnig séð alveg tryllta kynjaopinberun sem innihélt Power Ranger og bardaga.
Sjá einnig: Trylltasta kynjaopinberun sem við höfum séð
En nú hafa öll met verið gjörsamlega slegin. Paige Ginn heldur úti vinsælli Instagram-síðu. Hún kallar sig „stelpuna sem dettur í þykjustunni“. Eins og nafnið gefur til kynna, þá tekur hún myndbönd af sér detta í þykjustunni og deilir þeim á samfélagsmiðla.
Í nýjasta myndbandi sínu er hún hins vegar ekki að detta. Í því má sjá kynjaopinberun á allt öðru stigi en við höfum nokkurn tíma séð.
Horfðu á myndbandið hér að neðan.
https://www.instagram.com/p/B4wNPoYAxaG/
Paige prumpar mikið samkvæmt Instagram og YouTube, og tekur gjarnan myndbönd af því.
https://www.instagram.com/p/Bt46iuvBQT5/
Nýjasta myndband hennar hefur gjörsamlega slegið í gegn og hafa yfir 400 þúsund manns horft á það þegar greinin er skrifuð.