fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024

Lesið í tarot Sólveigar: „Hún verður fyrir árásum úr öllum áttum og því gæti einmanaleiki, jafnvel ístöðuleysi, hrjáð hana“

Ritstjórn Bleikt
Sunnudaginn 6. október 2019 13:22

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Miklar deilur hafa geisað í kringum Eflingu undanfarnar vikur og mánuði og er formaðurinn Sólveig Anna Jónsdóttir þar í forgrunni. DV ákvað því að lesa í tarotspil Sólveigar og athuga hvað framtíðin ber í skauti sér, en lesendur DV eru minntir á að þeir geta dregið tarotspil á hverjum degi, jafnvel oft á dag, á dv.is.

Ekki lofa of miklu

Fyrsta spilið sem kemur upp hjá Sólveigu er 10 stafir. Það táknar þann mikla eril sem einkennir líf hennar nú, en erill er væntanlega vægt til orða tekið. Sólveig kom inn í Eflingu með mikið af væntingum og loforðum í farteskinu, en er nú að átta sig á að hún hefur hugsanlega tekið meira að sér en hún ræður við. Þegar maður færist of mikið í fang þá leiðir það óhjákvæmilega til þess að maður leysir verkefni ekki vel úr hendi, sama hve mikið maður leggur sig fram. Það er Sólveig að upplifa núna. Hún ætti því að læra listina að deila út verkefnum og ekki hafa allar heimsins byrðar á herðum sér. Sólveig þarf að sýna undirmönnum sínum traust og leyfa þeim að spreyta sig. Í framtíðinni þarf hún síðan að hugsa sig tvisvar um áður en hún lofar upp í ermina á sér.

Svartsýni villir sýn

Næst er það Tunglið. Það táknar tilfinningalíf Sólveigar en það einkennist um þessar mundir af óreiðu. Hún verður fyrir árásum úr öllum áttum og því gæti einmanaleiki, jafnvel ístöðuleysi, hrjáð hana. Það er hins vegar fjarri sanni að Sólveig ráði ekki við það erfiði sem steðjar að henni. Hún er er sterkur einstaklingur og má alveg staldra stutt við í vonleysi og depurð áður en hún rís aftur á fætur og tekst á við framhaldið. Hennar helsti galli er sá að hún sér ekki raunveruleikann eins og hann er heldur lætur svartsýni villa sér sýn. Hún þarf að horfa betur í kringum sig og treysta á innsæið sem hefur komið henni svo langt í gegnum tíðina. Framtíðin er nefnilega björt og nú er tíminn til að ná samkomulagi svo leiðindin séu á bak og burt.

Ósætti á vinnustað

Loks eru það 2 sverð. Það táknar Sólveigu og náinn samstarfsfélaga hennar. Samstarfið hefur að mestu leyti gengið vel en eitthvað smávægilegt virðist hafa komið upp á nýverið. Sólveig þarf að taka á honum stóra sínum til að koma á jafnvægi og þægilegu andrúmslofti. Ójafnvægið tengist nefnilega því að Sólveigu hefur ekki liðið mjög vel upp á síðkastið og hún hefur ekki náð að hlúa nógu vel að sinni andlegu líðan. Ef Sólveig hundsar þetta rafmagnaða andrúmsloft gæti þetta ósætti stigmagnast og valdið báðum aðilum mikilli vanlíðan á komandi vikum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 klukkutímum

Frank Lampard hafnaði áhugaverðu starfi eftir viðræður

Frank Lampard hafnaði áhugaverðu starfi eftir viðræður
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Albert í sögubækur Genoa eftir gærdaginn – Aðeins tveir gert betur en hann

Albert í sögubækur Genoa eftir gærdaginn – Aðeins tveir gert betur en hann
Pressan
Fyrir 3 klukkutímum

Risastór sléttuúlfur reyndist vera gráúlfur – Hurfu af sjónarsviðinu fyrir 100 árum

Risastór sléttuúlfur reyndist vera gráúlfur – Hurfu af sjónarsviðinu fyrir 100 árum
Pressan
Fyrir 12 klukkutímum

Lögreglukonan sem réðst ein til atlögu gegn stungumanninum í Sydney – „Ég var bara að vinna mína vinnu“ – Nýjar upplýsingar um morðingjann vekja óhug

Lögreglukonan sem réðst ein til atlögu gegn stungumanninum í Sydney – „Ég var bara að vinna mína vinnu“ – Nýjar upplýsingar um morðingjann vekja óhug
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Urðar yfir Arteta og segir þetta stærstu mistök hans – „Það hefur komið í bakið á okkur“

Urðar yfir Arteta og segir þetta stærstu mistök hans – „Það hefur komið í bakið á okkur“
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Sjáðu markið sem Albert skoraði í dag – Gjörsamlega ískaldur

Sjáðu markið sem Albert skoraði í dag – Gjörsamlega ískaldur
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Fögnuður Óskars í Noregi vekur mikla athygli – Af hverju var þetta lag undir?

Fögnuður Óskars í Noregi vekur mikla athygli – Af hverju var þetta lag undir?
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Nokkrir leikmenn United bíða eftir fréttum af Ten Hag – Skoða þá hvort þeir verði áfram að reyni að fara

Nokkrir leikmenn United bíða eftir fréttum af Ten Hag – Skoða þá hvort þeir verði áfram að reyni að fara
Eyjan
Fyrir 16 klukkutímum

Um átta af hverjum tíu óánægð með að Bjarni hafi sest í stól forsætisráðherra

Um átta af hverjum tíu óánægð með að Bjarni hafi sest í stól forsætisráðherra

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.