fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024

„Ég elska eiginkonu mína en vegna kynlífsþurrðar neyðist ég til að stunda kinkí kynlíf með vinnufélaga“

Ritstjórn Bleikt
Föstudaginn 25. október 2019 12:27

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég er að stunda kinkí kynlíf með vinnufélaga og hún er um tíunda konan sem ég held fram hjá með,“ segir nafnlaus karlmaður í bréfi til Dear Deidre á The Sun.

„Ég elska eiginkonu mína og börn en ég á erfitt með mig án þess að stunda kynlíf reglulega. Konan mín er vingjarnleg, blíð og umhyggjusöm. Við eigum aldrei alvarlegt rifrildi um neitt annað en kynlíf. Hún er 31 árs og ég er 33 ára. Synir okkar eru 7 ára og 3 ára. Við rífumst aldrei um þetta fyrir framan þá. En eftir að fyrsti sonur okkar fæddist þá tóku hlutirnir snarpa beygju.

Ég er alltaf að reyna að fá konuna mína til að gera eitthvað í svefnherberginu en við gerum það aldrei oftar en um tvisvar í mánuði. Og þegar við gerum það þá er það leiðinlegt.

Það var algjör kynlífsþurrð eftir að eldri sonur okkar fæddist og ég entist í sex mánuði áður en ég leitaði annað.

Ég er kennari og var sendur í vinnuferð. Það var ótrúlega aðlaðandi kona þar frá öðrum skóla og við enduðum með að sofa saman eftir að hafa fengið okkur í glas saman. Það var geggjað.

Það framhjáhald entist í sex mánuði og það hafa verið mörg síðan þá. Ég segi venjulega konunni minni að ég þurfi að vinna lengur og er að fara yfir efni frá krökkunum.

En ég er nýlega byrjaður að hafa áhyggjur þar sem konan mín er farin að tala um að setja miðunarapp á símana okkar fyrir öryggi.

Í augnablikinu er ég að hitta konu sem vinnur í skólanum mínum. Ég venjulega reyni að forðast einhvern of náinn mín en hún er bara þarna tímabundið. Hún er 27 ára og virkilega villt, hún er til í að prófa nánast allt í rúminu. Þetta er afbrigðilegasta kynlíf sem ég hef stundað.

Ég fékk einu sinni samviskubit yfir þessu öllu en ég hef margoft reynt að fá konuna mína til að fara til sálfræðings en hún vill ekki viðurkenna að eitthvað sé að.

Ég vil ekki skilnað vegna barnanna þannig mér finnst ég ekki hafa neitt annað val en að halda fram hjá. Það er pirrandi.“

Deidre segir að þetta hafi áhrif á syni þeirra.

„Strákarnir ykkar munu finna tilfinningalega undirstraumana heima. Þeir vita ekki hvað er rangt núna en þetta mun næstum pottþétt hafa áhrif á þá og sambönd þeirra í framtíðinni.

Ég skil gremjuna sem þú finnur fyrir, á báða vegu. Kannski vill eiginkonan þín ekki hitta kynlífsráðgjafa því henni finnst þú stimpla hana sem vandamálið – sem þú ert að gera – meðan eitthvað af þessu vandamáli gæti verið vegna þess hvernig þú stundar kynlíf með henni.

Byrjaðu upp á nýtt með því að bóka tíma hjá kynlífsráðgjafa og farðu einn ef konan þín neitar enn þá að fara með þér.

Ég er viss um að það muni hjálpa þér eitthvað og ég held að hún muni koma með þér ef þú tekur frumkvæðið,“

segir Deidre og bendir honum á hvar hann getur fundið kynlífsráðgjafa.

„Og hættu að halda fram hjá með kollega þínum. Það gæti eyðilagt ferill þinn sem og hjónabandið.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 klukkutímum

Prófaðu þetta næst þegar þú getur ekki sofið vegna fótapirrings

Prófaðu þetta næst þegar þú getur ekki sofið vegna fótapirrings
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Hraunaði yfir eigin leikmann í beinni útsendingu og lét allt flakka: Vinsæll en á ekki skilið mínútur – ,,Brást okkur öllum“

Hraunaði yfir eigin leikmann í beinni útsendingu og lét allt flakka: Vinsæll en á ekki skilið mínútur – ,,Brást okkur öllum“
Fókus
Fyrir 5 klukkutímum

Fékk fyrsta ofsakvíðakastið árið 2021 – „Þetta er versta tilfinning sem ég hef upplifað“

Fékk fyrsta ofsakvíðakastið árið 2021 – „Þetta er versta tilfinning sem ég hef upplifað“
Fókus
Fyrir 6 klukkutímum

Anne Hathaway þurfti að slumma tíu menn – „Þetta hljómaði viðbjóðslega“

Anne Hathaway þurfti að slumma tíu menn – „Þetta hljómaði viðbjóðslega“
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Brim fjárfestir í nýjasta kælibúnaði frá KAPP

Brim fjárfestir í nýjasta kælibúnaði frá KAPP
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Opinberar ástæðuna fyrir banninu: Varð bálreiður – ,,Helvítis svindlari“

Opinberar ástæðuna fyrir banninu: Varð bálreiður – ,,Helvítis svindlari“
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Knattspyrnusambandið íhugar að banna félögum alfarið að gera þetta

Knattspyrnusambandið íhugar að banna félögum alfarið að gera þetta
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.