Jónína Guðrún er fertug í dag, en hún fékk ansi skemmtilega afmæliskveðju í tilefni dagsins. Jónína sagði frá þessu í færslu á Facebook.
Jónína hefur nefnilega verið aðdáandi sjónvarpsþáttanna Neighbours, eða Nágranna í rúm 27 ár. Ein helsta stjarna þáttanna er Alan Fletcher, sem leikið hefur Karl Kennedy í 3679 þáttum, eða frá árinu 1987 til dagsins í dag. Alan sendi Jónínu myndband þar sem hann óskaði henni til hamingju með stórafmælið.
„Það mikilvægasta sem ég get sagt er til hamingju með afmælið! Ég vona að þú munir halda vel uppá afmælisdaginn með fjölskyldu og vinum.“
Alan talaði einnig um það hversu mikið hann héldi upp á Ísland, en hann segist hafa komið til landsins nokkrum sinnum og að honum hlakki til að koma aftur á klakann.
Hér má sjá Myndbandið sem Alan sendi Jónínu.
[videopress 9AFvOr1t permalink=“false“]