fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024

Kvöldið eyðilagt fyrir Kristínu Rut og vinkonum – Kallaðar tussur: „Reif í hækjuna og reyndi að taka hana“

Ritstjórn Bleikt
Þriðjudaginn 22. október 2019 12:40

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristín Rós og vinkonur hennar fóru saman á Aldamótatónleikana í Háskólabíó síðastliðna helgi. Þær lentu í heldur leiðinlegu atviki á tónleikunum þegar aðrir tónleikagestir hreinlega skemmdu upplifunina fyrir þeim. Kristín Rut segir frá þessu í viðtali við Hringbraut.

Ein vinkona Kristínar er á hækjum eftir slys. Þær ákváðu að kaupa dýrari miða svo að þær gætu setið og slasaða vinkonan þyrfti ekki að standa á hækjunum, sem reynist henni erfitt til langtíma.

„Eftir nokkur lög fara tvær stelpur fyrir framan okkur að dilla sér sem er náttúrulega kannski ekkert athugavert nema það að þetta eru sitjandi tónleikar og þær voru alveg upp við okkur og fyrir okkur,“ segir Kristín Rut við Hringbraut.

„Þær stóðu ofan á veskjunum okkar og hækjum [slösuðu vinkonu minnar]. Þegar við reyndum að færa dótið okkar rífur ein stelpan í hækjuna og reynir að taka hana af vinkonu minni,“ segir hún.

Kristín Rut lýsir því hvernig það hafi átt sér stað einskonar valdabaráttu um pláss þarna sem hafi endað með að „þær fóru að öskra á okkur að við værum tussur og fleira.“

Eftir tónleikana reyndi vinkona Kristínar að tala við stelpurnar.  „[Hún reyndi] að útskýra fyrir þeim að við hefðum borgað fyrir þennan stað vegna þess að vinkona okkar væru á hækjum og að þetta hafi verið afar leiðinlegt. Þær hefðu skemmt tónleikana fyrir okkur. Þá sögðu þær við okkur að við kynnum ekki mannleg samskipti. Við gátum ekkert gert svo við fórum bara,“ segir hún.

Kristín Rut hefur fengið afsökunarbeiðni frá einni stúlku sem átti hlut í málinu eftir að hafa vakið athygli á málinu á Facebook.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Byrjunarlið Brighton og Manchester City – Enginn Haaland

Byrjunarlið Brighton og Manchester City – Enginn Haaland
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Starfið í töluverðri hættu eftir niðurlægingu vikunnar

Starfið í töluverðri hættu eftir niðurlægingu vikunnar
Fókus
Fyrir 8 klukkutímum

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra
Fókus
Fyrir 9 klukkutímum

Prófaðu þetta næst þegar þú getur ekki sofið vegna fótapirrings

Prófaðu þetta næst þegar þú getur ekki sofið vegna fótapirrings
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Hraunaði yfir eigin leikmann í beinni útsendingu og lét allt flakka: Vinsæll en á ekki skilið mínútur – ,,Brást okkur öllum“

Hraunaði yfir eigin leikmann í beinni útsendingu og lét allt flakka: Vinsæll en á ekki skilið mínútur – ,,Brást okkur öllum“
Fókus
Fyrir 11 klukkutímum

Fékk fyrsta ofsakvíðakastið árið 2021 – „Þetta er versta tilfinning sem ég hef upplifað“

Fékk fyrsta ofsakvíðakastið árið 2021 – „Þetta er versta tilfinning sem ég hef upplifað“
Fókus
Fyrir 11 klukkutímum

Anne Hathaway þurfti að slumma tíu menn – „Þetta hljómaði viðbjóðslega“

Anne Hathaway þurfti að slumma tíu menn – „Þetta hljómaði viðbjóðslega“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.