Það var mikið um dýrðir í Listasafni Reykavíkur síðastliðinn föstudag þegar nýjasta fatalína verslunarinnar Geysis: Fýkur yfir hæðir var kynnt fyrir fullu húsi.
Línan er innblásin af verkum Ásmundar Sveinssonar og segir hönnuðurinn, Erna Einarsdóttir Reykjavík óþrjótandi innblástur fyrir sköpun sína. „Þetta er í fimmta sinn sem ég hanna fyrir Geysi en vinnan við þessa línu hófst í raun þegar ég var fæðingarorlofi veturinn 2018. Þann vetur varð á vegi mínum stytta nokkur af móður að faðma barn sitt, sem snart streng í hjarta mínu. Þar var á ferðinni einn af fjölmörgum málmskúlptúrum Ásmundar Sveinssonar en verk hans má finna víða í höfuðborginni. Má því segja að rölt mitt um borgina í leit að skúlptúrum Ásmundar hafi haft mikil áhrif á línuna, enda er Reykjavík óþrjótandi innblástur fyrir mig.”
Erna segir línuna nokkuð minimalíska þó humor og sérviska séu aldrei langt undan. „Línan er undir miklum áhrifum tísku frá tíunda áratugnum en sem endranær eru sterkir litir og prjónaðar flíkur hluti af línunni, en ný form líta dagsins ljós í þessari línu. Geysiskonan heldur áfram að þróast en nú bætir hún gallabuxum og ullarkápum við í fataskápinn sinn. Ég er einnig einstaklega ánægð að kynna ykkur nú fyrir manninum hennar, en hann hefur verið í mótun í hugum okkar síðastliðið ár.“