Þúsundir feðra eru hvattir til að ræna börnum sínum og leggja fram falskar ásakanir á hendur barnsmæðrum sínum.
Færsla á Facebook-síðu, fyrir karlmenn sem hafa verið beittir heimilisofbeldi, hvetur rúmlega nítján þúsund fylgjendur sína til að taka þátt í samræmdu fjölda barnsráni.
Síðan, Heimilisofbeld gegn körlum (e. Domestic Violence Against Men), segir áströlskum karlmönnum að fara með börn sín milli ríkja þann 1. desember næstkomandi.
„Þann 1. desember verða allir feður að taka börnin sín og fara með þau í annað ríki, og síðan tilkynna móðurina fyrir kynferðisofbeldi #jafnræði,“ segir í færslunni.
Sama dag var annarri færslu deilt: „Feður eru að taka aftur rétt sinn, þeir munu taka börn sín og fara með þau í annað ríki #jafnræði.“
Næsta dag kom önnur færsla á síðuna þar sem kom fram að þeir væru að sækjast eftir fjölmiðlaathygli.
„Við ætlum að komast í fréttirnar sama hvað, öllum er skítsama um hvernig þetta hefur áhrif á okkur eða af hverju við #sjálfsvíg,“ stóð í færslunni.
Síðan er mjög virk og hafa fjölmargar færslur birst í dag. Meðal annars spyr síðan hvort að konum sé leyft að vera kynferðslega hlutgerðar og hafa réttinn til þess að tálma föður frá barni sínu.
Síðan spurði einnig fyrr í dag hvort það væri rangt fyrir föður að taka barnið sitt og flýja með það, til að sýna hvernig það er að vera einangraður.
Í lýsingu Facebook-síðunnar kemur fram að síðan sé fyrir karlmenn sem hafa verið beittir heimilisofbeldi og það hefur verið þaggað niður í þeim. Þeir eru hvattir til að tjá sig þar inni frekar en að taka eigið líf.
Eigandi síðunnar er Charles. Hann stofnaði síðuna árið 2015 og fékk nokkra sjálfboðaliða til að sjá um síðuna.
„Eina sem ég hef gert frá byrjun að var að tjá tilfinningar þeirra í þannig stöðu og ástandi,“ skrifaði hann fyrr í dag á Facebook.
Talsmaður áströlsku ríkislögreglunnar sagðist vita af hópnum og öðrum hópum sem berjast fyrir réttindum allra hliða í fjölskyldumálum. News.com.au greinir frá.