Sundfatatískan þetta árið hefur verið afar skrautleg og áhugaverð. Við skoðuðum sundfatatísku íslensku áhrifavaldanna í sumar og nýja sundfatatísku sem vakti athygli á tískupöllunum. En sumarið er ekki búið og sundfatatískan heldur áfram að þróast. Bikiní frá tískuhúsinu Karen Hurley eru að vekja mikla athygli.
Eins og sjá má á myndinni hér að ofan er verið að vinna með mikið af böndum og það sést í mikið af holdi. Hvernig verða eiginlega brúnkulínurnar?
Myndir af konum í bikiníinu hafa gengið eins og eldur í sinu um netheima síðustu daga. Ýmsir fjölmiðlar vestanhafs, eins og The Sun og News.com.au, hafa fjallað um þetta óvenjulega bikiní og athyglina sem það hefur fengið.
https://www.instagram.com/p/BxLqoajhDap/
Á vefsíðu Karen Hurley kemur fram að þetta bikiní sé „ekki fyrir kjarklausa.“
Þetta er þó ekki eitthvað Instagram-trend meðal áhrifavalda, en fyrirtækið segir að þetta sé þeirra vinsælasta bikiní, og kostar 11.500 krónur.
https://www.instagram.com/p/Blb02A2lYPu/
https://www.instagram.com/p/BuDWTMWBOTY/
„Það eru venjulega konur á tvítugs- eða þrítugsaldri sem kaupa djarfari bikiníin mín,“ segir Karen Hurley við Yahoo Lifestyle.
Fyrir fólk sem er alveg komið með nóg af þessum bikinítrendum þá erum við með góðar fréttir, en Karen Hurley segir að þessi „djörfu bikiní“ munu ekki vera lengi í tísku og fljótlega munu „vintage og hefðbundin“ sundföt taka við af þeim.