Það styttist í að myndin Hustlers komi í kvikmyndahús en hennar er beðið með mikilli eftirvæntingu. Jennifer Lopez, Constance Wu, Lili Reinhart, Cardi B, Julia Stiles, Keke Palmer og Lizzo fara með hlutverk í myndinni.
Þær leika strippara sem svindla milljónir af Wall Street bankamönnum. Myndin er byggt á grein sem birtist í New York tímaritinu árið 2015 eftir Jessicu Pressler. Söguþráður myndarinnar minnir mjög á söguna af Hróa Hetti sem stelur frá þeim ríku og gefur fátækum en að þessu sinni er bjargvætturinn léttklædd kona.
Í nýju myndbandi sem STX Films gaf út nýlega má sjá atriði úr myndinni þegar Jennifer Lopez kennir Constance Wu nokkur trix á súlunni.
Sjáðu myndbandið hér að neðan.
Myndin verður frumsýnd 13. september næstkomandi.