Kona opnar sig um óhugnanleg skilaboð sem hún fær frá karlmönnum á hverjum degi á Twitter. Meðal annars frá eldri karlmönnum sem vilja verða „sykurpabbar“ (e. sugar daddy) hennar.
Ruth, 21 árs, deildi á Twitter skjáskotum af aðeins broti af þeim skilaboðum sem hún fær daglega.
„Þegar ég fæ svona skilaboð, þá verð ég áhyggjufull,“ skrifar Ruth.
„Ég hugsa, hvernig fundu þeir mig og af hverju eru þeir að senda mér?“
Ruth lýsir sér sjálfri sem „perra-veiðara“ og bætir við: „Ég mun aldrei deila persónulegum upplýsingum um mig. En þetta getur verið óhugnanlegt því þú veist ekki hversu langt þeir eru tilbúnir að ganga.“
Twitter-færsla Ruth hefur fengið mikil viðbrögð og skrifaði einn netverji: „Það er skelfilega mikið af furðufuglum þarna úti.“