Ítalskur milljónamæringur hefur verið harðlega gagnrýndur eftir að hafa deilt myndbandi af sér flengja fyrirsætur á snekkjunni sinni. Hann svaraði fyrir sig með myndbandi þar sem hann var flengdur.
Gianluca Vacchi, 52 ára, deildi myndbandi á Instagram sem vakti mikla athygli.
https://www.instagram.com/p/B03QXCzHH1T/
Myndbandið byrjar á því að Gianluca gengur niður nokkur þrep og kemur að nokkrum konum sem beygja sig fram. Hann flengir þær og dansar síðan með einni þeirra, meðan hinar dansa bakvið þau.
Fólk skiptist í fylkingar og sögðust margir hafa gaman af myndbandinu. Meðan aðrir sögðu myndbandið vera niðurlægjandi fyrir konunnar.
Gianluca er með 13,3 milljón fylgjendur á Instagram. Hann sagði fylgjendum sínum að „slaka á“ og deildi myndbandi þar sem hann er flengdur af konum.
Í myndbandinu er hann í pilsi og háum hælum, beygir sig fram og fjórar konur flengja hann á beran bossann.
https://www.instagram.com/p/B1EPucrH3Ji/