Leikkonan og athafnakonan Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir hefur farið mikinn í pistlum í Fréttablaðinu undanfarnar vikur. Steinunn liggur ekki á skoðunum sínum og er óhrædd við að gagnrýna allt sem betur mætti fara í samfélaginu. Steinunn getur státað af glæsilegum leiklistarferli og hún ritstýrði Kvennablaðinu við góðan orðstír um nokkurra ára skeið. Við ákváðum því að lesa í tarotspil leikkonunnar og reyna að sjá hvað hún tekur sér fyrir hendur næst. Vert er að minna lesendur á að hægt er að draga tarotspil á vef DV.
Fyrsta spilið sem birtist er 4 bikarar sem táknar ákveðna ládeyðu hjá leikkonunni. Henni finnst hún föst í rútínu og hreint út sagt leiðist. Steinunn er kröfuhörð og tekur því ekki hvaða tilboði sem er. Það hefur ekkert gefandi orðið á vegi hennar síðustu mánuði og þótt það sé gott að vera kröfuharður þá má hún hafa það hugfast að stundum þarf maður að opna augun fyrir tækifærunum. Hún þarf á breytingu að halda.
Næsta spil er 7 stafir en það tengist metnaði, áræðni og ákafa Steinunnar. Hún er ótrúleg kona, kynngimögnuð og sterk. Þá nær hún að takast á við erfiðleika með kjarki og ástríðu sem aðrir öfunda hana af. Þessir eiginleikar koma sér vel á næstu vikum því Steinunnar bíður einhvers konar fundur sem gæti breytt lífi hennar. Hún þarf að muna að standa föst á sínu og ekki beygja sig fyrir því sem hún trúir ekki á – þá eru henni allir vegir færir.
Loks er það Sverðkonungurinn, en hann merkir manneskju sem hjálpar Steinunni. Þetta er mikil bisnessmanneskja og elskar að stjórna. Þetta virðist vera karlmaður frekar en kona. Hann er klár, sjálfstæður og nýjungagjarn. Hann hjálpar Steinunni að láta einhvern viðskiptadraum rætast, en líklegt er að sá draumur verði á listræna sviðinu. Þessi fjársterka hjálparhella mun veita Steinunni mikil völd, ekki aðeins í formi peninga, og mun metnaður þeirra beggja láta þetta viðskiptatækifæri blómstra.