Móðir kom dóttur sinni rækilega á óvart fyrir 21 árs afmæli hennar. Hún keypti handa þeim varafyllingar í stíl, svo þær gætu verið alveg eins.
Sandra, 45 ára, og dóttir hennar Mariah, 21 árs, eru í raunveruleikaþættinum sMothered á TLC. Þátturinn fjallar um furðulega náin og eiginlega frekar „óheilbrigð“ mæðgna sambönd. Í þættinum fara þær saman til að láta sprauta í varir þeirra.
Sandra gefur dóttur sinni fyllinguna í 21 árs afmælisgjöf. Mariah segist ekki þurfa á varafyllingu að halda en sé alveg til í þrýstnari varir og var hún mjög ánægð með óvæntan glaðnin móður sinnar.
Frænka Mariah grátbiður hana um að fá sér ekki varafyllingu. „Ég er mjög náin dætrum mínum. En Sandra og Mariah hafa tekið þetta á nýtt stig. Drepið mig úna! Ég held að þetta sé það fáránlegasta sem ég hef nokkurn tíma séð allt mitt líf,“ segir Jen.
En mæðgurnar láta ekki það stoppa sig.
„Ég vil líta út alveg eins og dóttir mín,“ segir Sandra við lýtalækninn.
Varir Mariuh voru svo bólgnar eftir á að hún gat varla talað. Hún horfði í spegilinn og var í smá sjokki yfir því sem hún sá. „Ó sjitt! Þetta er soldið mikið!“
Hvað segja lesendur? Heilbrigt mæðgnasamband?