Ljóst er að leikaranum Alec Baldwin þykir nóg um myndatökur dóttur sinnar en þær þykja í djarfara lagi.
Ireland Baldwin sem er 23 ára, starfar sem fyrirsæta, lætur mótbárur föður síns ekki stoppa sig en nýverið skarst föðurbróðir hennar einnig í leikinn með fjörlegri athugasemd þar sem hann segist varla kunna við að “líka” uppstillingu litlu frænku þar sem hún stendur kviknakin á húsþaki með yfirskriftinni: „Takk @sixtyhotels fyrir dásamlega dvöl. Eflaust má ég aldrei koma aftur en það er í góðu lagi. Rassinn á mér er ekki svona hvítur. Þetta er sólin. Eða jú, hann er svona hvítur.“ Undir þetta kvittar karl faðir hennar: „Afsakið. Ha?“ Sem kostulegt er að ímynda sér hann segja með sínum seiðandi rómi, undir þetta tekur svo föðurbróðirinn Billy Baldwin: „Erfitt fyrir Billy frænda að smella á læk #vandræðalegt“