fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024

Þessi fimm einföldu atriði hjálpa þér að bæta sjálfstraustið

Ritstjórn Bleikt
Laugardaginn 13. júlí 2019 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Öll vitum að gott sjálfstraust er lykilatriði þegar kemur að ýmsum þáttum daglegs lífs; hvort sem um er að ræða vinnu, nám, íþróttir eða samskipti við annað fólk. Þeir sem hafa gott sjálfstraust eru síður berskjaldaðir fyrir kvíða og eiga oft og tíðum auðveldara með að mynda tengsl við aðra.

Jákvæðir þættir góðs sjálfstrausts eru ótvíræðir en það hvernig við öðlumst meira sjálfstraust getur verið vandkvæðum bundið. Guy Winch er bandarískur sálfræðingur með yfir tuttugu ára reynslu. Nýverið ritaði hann áhugaverða grein fyrir vefsíðu Ted, en margir þekkja eflaust Ted-fyrirlestrana sem taka á ýmsum áhugaverðum málefnum. Hann deildi með lesendum nokkrum atriðum sem fólk getur gert sjálft til að efla sjálfstraust sitt og hvernig er best að glíma við þau andlegu högg sem geta á köflum gert okkur lífið leitt.

Guy Winch segir að ýmislegt sé hægt að gera til að efla sjálfstraustið. Það krefjist þó nokkurrar vinnu.

Notaðu jákvæðar staðhæfingar

Stundum er sagt að maður sé það sem maður borðar en fullyrðingin að maður sé það sem maður hugsar á jafnvel enn betur við. Með jákvæðum staðhæfingum er átt við að maður fylli hugann af jákvæðum hugsunum þar til maður byrjar að trúa þeim. „Þetta er vinsæl leið þegar markmiðið er að efla sjálfstraustið, enda er hún einföld,“ segir Winch en bætir þó við að það skipti máli hvernig hugsanirnar eru settar fram. Þannig geti jákvæðar staðhæfingar gert einstaklingum með mjög lágt sjálfstraust erfitt fyrir. Winch mælir til dæmis með því að skipta út fullyrðingu eins og: „Mér mun ganga vel“ fyrir hófstilltari fullyrðingu eins og: „Ég mun ekki gefast upp heldur halda áfram að reyna þar til mér gengur vel.“

Einbeittu þér að því sem þú gerir vel

Winch segir að sjálfstraust einstaklinga eflist þegar þeir hlutir eru framkvæmdir sem viðkomandi veit að hann hefur hæfileika í. Winch hvetur fólk til að koma auga á styrkleika sína og leggja rækt við þá. Ef þú ert góð eða góður í hlaupum, skráðu þig í þá í hlaupaklúbb. Ef þú ert góður kokkur, haltu þá fleiri matarboð. Lykilatriðið, segir Winch, er að finna hvar hæfileikarnir liggja og koma auga á tækifærin til að rækta þá.

Lærðu að taka hrósi

Þegar okkur líður illa í eigin skinni, af einhverjum ástæðum, getur verið erfitt fyrir aðra að draga okkur upp úr svaðinu, ef svo má segja. Þegar svo ber undir eigum við það til að verða ómóttækileg fyrir hrósi og jafnvel afskrifa það sem lygar eða órökstudda fullyrðingu sem sett er fram til þess eins að okkur líði betur. Winch segir að í stað þess að gera það eigi fólk að læra að taka hrósi og nota það til að byggja sig upp. Sumir eiga erfitt með að taka hrósi, fara jafnvel hjá sér eða hlæja vandræðalega, þegar það kemur. Winch segir að fólk eigi að temja sér að þakka alltaf fyrir hrósið. „Hvötin til að hlæja eða fara hjá sér þegar hrósið kemur mun á endanum hverfa, sem aftur er merki þess að þú sért farinn að trúa því sem er sagt við þig,“ segir Winch.

Ekki rífa þig niður

Flest okkar eru þannig úr garði gerð að okkur líður illa þegar sparkað er í liggjandi mann, hvort heldur sem er í orði eða á borði. Af hverju ættum við að gera okkur sjálfum það? Þegar sjálfstraust okkar er lítið eigum við til að gera einmitt þetta; stunda sjálfsniðurrif svo okkur líði jafnvel enn verr. Winch segir mikilvægt að fólk búi yfir réttu verkfærunum til að eiga við þetta og stunda eins konar hluttekningu með sér sjálfu. „Þegar þitt innra sjálf byrjar á niðurrifinu, spurðu sjálfan þig hvort þú myndir undir einhverjum kringumstæðum segja þessa hugsun upphátt við besta vin þinn. Líklega ekki, ekki satt?“ Winch segir að við eigum það til að vera hluttekningarfyllri gagnvart náunganum, vinum eða fjölskyldu, en okkur sjálfum. Hann hvetur fólk til að hafa þetta í huga, þá sérstaklega spurninguna hér að framan, þegar við byrjum að rífa okkur niður.

Minntu þig á hvers virði þú ert

Þegar sjálfstraust okkar bíður hnekki, af einhverjum ástæðum, segir Winch að besta leiðin til að endurheimta það sé að minna sig á hvers virði maður er. Hann nefnir sem dæmi erfið sambandsslit sem geta skaðað sjálfstraust okkar. Í stað þess að rífa sig niður og telja sjálfum sér trú um hversu ómögulegur maki maður var, mælir Winch með því að fólk setji saman lista yfir þau atriði og þá kosti sem einmitt gera mann að góðum maka. Og ef maður fær ekki stöðuhækkunina í vinnunni, sem maður vonaðist eftir, mælir Winch með því að maður riti niður þá kosti sem maður býr yfir sem gera mann að verðmætum starfsmanni. Ef þú ert áreiðanlegur starfskraftur eða trúr þínum vinnuveitanda, skrifaðu það niður. Skrifaðu eina eða tvær málsgreinar um það hvers vegna þínir eiginleikar séu mikilvægir og af hverju þeir skipta máli.

Það krefst vinnu að byggja upp sjálfstraust, en Winch bendir á að ávinningurinn af því sé ótvíræður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 klukkutímum

Travis Barker gagnrýndur fyrir að birta mynd af Kourtney á klósettinu

Travis Barker gagnrýndur fyrir að birta mynd af Kourtney á klósettinu
Fókus
Fyrir 2 klukkutímum

Bankarnir í Þýskalandi hata hana – Þetta er ástæðan

Bankarnir í Þýskalandi hata hana – Þetta er ástæðan
Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Lögregla fann 29 dauða nautgripi á bæ á Norðurlandi Vestra

Lögregla fann 29 dauða nautgripi á bæ á Norðurlandi Vestra
Eyjan
Fyrir 4 klukkutímum

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Ríkharð segir þetta ástæðu þess að KSÍ hefur ekki ráðið framkvæmarstjóra – „Hún er byrjuð í annarri vinnu og þiggur laun þar“

Ríkharð segir þetta ástæðu þess að KSÍ hefur ekki ráðið framkvæmarstjóra – „Hún er byrjuð í annarri vinnu og þiggur laun þar“
Pressan
Fyrir 5 klukkutímum

Ert með ofnæmi fyrir hundum? Þá gætirðu líka verið með lítt þekkt kynlífsofnæmi

Ert með ofnæmi fyrir hundum? Þá gætirðu líka verið með lítt þekkt kynlífsofnæmi
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Guðmundur H. Garðarsson er látinn

Guðmundur H. Garðarsson er látinn
Pressan
Fyrir 9 klukkutímum

Þetta er ástæðan fyrir að þú átt ekki að nota símann þegar þú ert á klósettinu

Þetta er ástæðan fyrir að þú átt ekki að nota símann þegar þú ert á klósettinu
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Norski áhrifavaldurinn nú komin með athyglisverðan titil – Sjáðu nýjustu myndir hennar

Norski áhrifavaldurinn nú komin með athyglisverðan titil – Sjáðu nýjustu myndir hennar

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.