Eik Gísladóttir hefur sett íbúð sína við Sæviðarsund 62 í Reykjavík á sölu, en um er að ræða rúmlega 230 fermetra raðhús sem er búið að taka mikið í gegn.
Húsið er búið fimm svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum, en í hjónasvítunni er mikið og gott skápapláss og sér baðherbergi.
Ásett verð á herlegheitin eru 113 milljónir.
Eik er lærður hárgreiðslumeistari en einnig athafnakona, og tók meðal annars þátt í að stofna Kvennablaðið á sínum tíma.