Ef þú hefur í huga að selja eignina þína, þá ættir þú kannski að hafa það í huga að taka gæludýrið þitt með þér af heimilinu á meðan fasteignasalinn sýnir íbúðina.
Köttur nokkur sem var skilinn eftir heima á meðan fasteignasalinn var að sýna íbúðina tók upp á því að reiðast fasteignasalanum og halda henni lokaðri inni í hjónaherberginu. Það var sama hvað fasteignasalinn reyndi, kötturinn hótar henniu öllu illu þegar hún reynir að komast út úr herberginu.
Fasteignasalinn tók atvikið upp á myndband og segist hún alveg viss um að ástæðan fyrir því að íbúðin sé ekki þegar seld sé vegna kattarins. Myndbandið er bráðfyndið og má sjá hér að neðan:
https://www.facebook.com/whatdidijust/videos/2184508141765680/