Þegar Þórdís Björk Georgsdóttir orðin þreytt á því að setjast á pissudropa á morgnanna, tók hún málin í sýnar hendur.
„Ég gerði þetta fyrir strákana mína fyrir ári síðan. Þeir voru ekkert rosalega glaðir, sem gerði þetta ennþá skemmtilegra,“ segir Þórdís Björk sem setti mynd af klósettinu á heimilinu inn á síðuna Family Living – the true story á Facebook. Í samtali við Bleikt segir Þórdís hlæjandi að gott sé að vekja umræðu um þetta vandamál „sem virðist bara hrjá þá einstaklinga sem eru ekki með tippi.“
Við á Bleikt könnumst vel við vandamál Þórdísar og vonum innilega að þessi leið hennar hafi hjálpað til.