Lýðræði deyr ekki þegar skriðdrekar rúlla inn á torg. Það deyr þegar sannleikurinn verður valkvæð stærð í stjórnmálum.
Lýðræðið er ekki sjálfgefið. Það er ekki náttúrulögmál. Það er samkomulag um að sannleikurinn skipti máli, að leikreglurnar gildi fyrir alla og að valdið lúti aðhaldi.
Þess vegna er lýðræðið viðkvæmara en margir gera sér grein fyrir. Það hangir einungis saman ef meirihluti einstaklinga hlúa að velferð þess.
Það stendur og fellur með trausti. Trausti á stofnunum. Trausti á dómstólum. Trausti á fjölmiðlum. Trausti á vísindum. Og síðast en ekki síst, trausti á því að þeir sem þjóðin kýs fari með sannleikann en ekki aðeins það sem hentar hverju sinni.
Þar erum við farin að sjá hættuleg merki.
Einkahagsmunir hafa sífellt meira vægi en almannahagsmunir. Fjármagnið, sérhagsmunasamtök og pólitískir hagsmunir toga í samfélagið úr ólíkum áttum. Í stað þess að spyrja: „Hvað er rétt?“ er spurt: „Hvað þjónar okkar málstað?“
Þegar sú spurning verður ráðandi er lýðræðið komið á hálan ís.
Á sama tíma hefur orðið tískufyrirbæri að gera lítið úr akademíunni. Ef rannsóknir henta ekki pólitískri dagskrá eru vísindamenn sakaðir um hlutdrægni. Ef staðreyndir styðja ekki fyrirfram ákveðna niðurstöðu eru þær afgreiddar sem áróður. Óháðar stofnanir lagðar niður. Þekking verður óþægileg og fáfræðin pólitískt nytsamleg.
Þetta er stórhættuleg þróun.
En mesta ábyrgðin hvílir á stjórnmálamönnum. Þeir eiga ekki að móta staðreyndir eftir stefnu sinni. Þeir eiga að móta stefnu sína eftir staðreyndum. Því miður virðist það vera á undanhaldi víða um hinn vestræna heim og líka hérna heima.
Við gerum líka allt of litlar kröfur til þeirra sem fara með umboð þjóðarinnar. Á Alþingi gilda reglur um að fara rétt með staðreyndir. En um leið og komið er út úr þingsalnum virðast allt aðrar reglur taka við. Rangfærslur, ýkjur og hálfsannleikur fljúga um samfélagsmiðla og fjölmiðla án þess að nokkur axli ábyrgð.
Af hverju sættum við okkur við það?
Þjóðkjörnir fulltrúar eiga að vera bundnir sömu kröfum um heiðarleika gagnvart þjóðinni og þeir eru gagnvart þinginu. Umboð frá þjóðinni er ekki leyfi til að villa um fyrir þjóðinni. Lýðræði byggir á upplýstu samþykki kjósenda. Það samþykki verður marklaust ef upplýsingarnar sem kjósendur fá eru rangar eða viljandi villandi.
Kosningar eru sjálfsleiðréttingarkerfi lýðræðisins. En kerfið virkar aðeins ef kjósendur geta treyst því sem þeir heyra. Ef umræðan byggist á blekkingum verða kosningar ekki leiðrétting heldur staðfesting á blekkingunni. Gott dæmi eru Brexit kosningar í Bretlandi og nú vestanhafs sjáum við alvarlegar afleiðingarnar. Þar hefur kerfisbundið vantraust verið sáð gagnvart dómstólum, fjölmiðlum, háskólum og jafnvel sjálfum kosningunum. Þegar þjóð getur ekki lengur orðið sammála um hvað sé staðreynd er lýðræðið komið á hættulegan stað. Vonandi tekst Bandaríkjamönnum að snúa þeirri þróun við. Það er ekki aðeins þeirra hagsmunamál heldur alls hins lýðræðislega heims.
Hér á Íslandi sjáum við nú sambærileg merki í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst um hvort hefja eigi að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið. Hátt heyrist í hagsmunaaðilum og stjórnmálaöflum sem standa vörð um tiltekna hagsmuni og vilja helst ekki einu sinni kanna hvað aðildarsamningur gæti falið í sér fyrir Ísland. Sumir virðast jafnvel óttast að fram fari óháð og heildstæð hagsmunagreining sem almenningur gæti byggt afstöðu sína á.
En einmitt þannig á lýðræðið að virka. Fyrst eigum við að afla upplýsinga, greina kosti og galla og leggja staðreyndirnar opinskátt á borðið. Að því loknu getur þjóðin tekið upplýsta ákvörðun um hvort endanlegur samningur þjóni hagsmunum Íslands. Það er ekki lýðræðisleg afstaða að vilja koma í veg fyrir að þjóðin fái nauðsynlegar upplýsingar. Það er tilraun til að stýra niðurstöðunni með því að takmarka sjálfan ákvörðunargrundvöllinn.
Við megum heldur ekki vanmeta áhrif þeirra sem móta orðræðuna í samfélaginu. Stjórnmálamenn lýsa ekki aðeins veruleikanum heldur hafa þeir með orðavali sínu, mælskulist og síendurteknum skilaboðum áhrif á það hvernig við skynjum hann. Þegar ákveðin orð og hugtök eru endurtekin nægilega oft geta þau smám saman orðið að viðteknum sannindum, jafnvel þótt þau byggist á ýkjum, hálfsannleika eða hreinum rangfærslum.
Þeir sem ráða dagskránni geta þannig skilgreint hverjir teljast „við“ og hverjir „hinir“, hvað telst réttmæt skoðun og hvað er afgreitt sem óæskilegt eða jafnvel óþjóðlegt. Þegar stjórnmálamenn stilla gagnrýnendum upp sem óvinum þjóðarinnar, útlendingum sem ógn eða alþjóðlegri samvinnu sem svikum við sjálfstæðið, eru þeir ekki aðeins að lýsa skoðun sinni. Þeir eru að móta hugsun fólks og tilfinningar þess gagnvart umheiminum.
Þarna liggur ein helsta hættan við öfgafulla þjóðernisstefnu. Hún byggir sjaldnast styrk sinn á staðreyndum einum saman heldur á ótta, einföldum slagorðum og stöðugri endurtekningu. Smám saman þrengist rýmið fyrir sjálfstæða hugsun og málefnalega umræðu. Lýðræðið veikist þegar fólk er ekki lengur hvatt til að hugsa og spyrja, heldur ætlast til þess að það fylgi fyrirfram mótaðri orðræðu og pólitískum rétttrúnaði.
Sagan ætti að vera okkur víti til varnaðar. Öfgafull þjóðernisstefna var einn af drifkröftunum sem leiddu Evrópu inn í tvær heimsstyrjaldir. Þegar stjórnmál byggjast á því að skilgreina óvini í stað þess að leysa vandamál verður næsta skref oft átök.
Það sem Rússland gerir gagnvart Úkraínu er áminning um að þessi hugsun er ekki horfin. Hún birtist í nýjum búningi en með sömu gömlu röksemdunum: að stórveldi eigi sérstakan rétt, að nágrannaríki hafi ekki fullt sjálfræði og að þjóðernið réttlæti yfirgang. Evrópa hefur áður borgað óbærilegt verð fyrir slíka hugmyndafræði.
Lýðræðið verður ekki varið með fánaræðum á hátíðisdögum. Það verður varið með því að krefjast sannleika af þeim sem fara með vald. Með því að verja sjálfstæða fjölmiðla, frjálsa akademíu og sterkar stofnanir. Og með því að hafna þeirri hugmynd að markmiðið helgi meðalið í stjórnmálum.
Lýðræði tapast ekki þegar fyrstu lygarnar eru sagðar. Það tapast þegar við hættum að gera kröfu um sannleikann.
Það er ábyrgð okkar allra. En hún er mest hjá þeim sem fara með vald í umboði þjóðarinnar.