fbpx
Sunnudagur 24.maí 2026
Fréttir

Birgir segir gyðinga hér á landi óttaslegna: Einum neitað um afgreiðslu fyrir það eitt að vera gyðingur

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 6. júní 2024 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þeir sem ég ræddi við segja all­ir sömu sög­una. Þeir eru ótta­slegn­ir og hrædd­ir við að segja að þeir séu gyðing­ar eða frá Ísra­el,“ segir Birgir Þórarinsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við Morgunblaðið í dag.

Í fréttinni kemur fram að Morgunblaðið hafi leitað til Birgis eftir að viðmælendur blaðsins höfðu lýst vanlíðan gyðinga hér á landi. Sjálfur heimsótti hann Ísrael og Palestínu eftir voðaverkin 7. október þegar vígamenn á vegum Hamas réðust á óbreytta borgara í Ísrael.

Birgir segist hafa rætt nýlega við gyðinga sem búsettir eru á Íslandi en gyðingasamfélagið hér telur um 400 manns.

„Ég fékk leyfi til að segja frá því hvernig þeim liði, en ég mátti ekki nafn­greina þá sem ég ræddi við og þeir vildu ekki að mynd yrði birt af okk­ur. Þeir segj­ast finna fyr­ir vax­andi gyðinga­h­atri hér á landi og vilja helst ekki að þeir þekk­ist á götu úti. Þeir passa vel upp á að ísra­elski fán­inn sé hvergi sýni­leg­ur þar sem þeir eru. Það er óhætt að segja að þeir fari með veggj­um,“ segir hann í samtali við Morgunblaðið.

Hann bætir við að tilfinning þeirra sé að rödd Ísraels varðandi stríðið heyrist ekki í fjölmiðlum hér á landi og margar rangar fullyrðingar frá Hamas-samtökunum endurómaðar og birtar sem sannleikur.

„Vegna stríðsins á Gasa hafa börn gyðinga orðið fyr­ir aðkasti hér á landi. Þau hafa orðið fyr­ir einelti á net­inu og í skól­um af ís­lensk­um börn­um og einnig múslímskum skóla­fé­lög­um sem hafa ar­ab­ísku að móður­máli. Þess eru dæmi að börn hafi þurft að skipta um skóla vegna þessa. Þá var gyðingi neitað um af­greiðslu í versl­un fyr­ir jól­in í Reykja­vík fyr­ir það eitt að vera gyðing­ur,“ segir Birgir við Morgunblaðið þar sem nánar er fjallað um þetta mál.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íslenska ríkið bótaskylt vegna vítaverðrar framgöngu Tómasar í plastbarkamálinu

Íslenska ríkið bótaskylt vegna vítaverðrar framgöngu Tómasar í plastbarkamálinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hrafn sá mann „chugga“ flösku af Egils Orku

Hrafn sá mann „chugga“ flösku af Egils Orku
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Andrea segir hundaeigendur gefa of mikið nammi og það hafi vond áhrif – „Þetta eru ótrúlega klár dýr. Þau eru fljót að spila á okkur“

Andrea segir hundaeigendur gefa of mikið nammi og það hafi vond áhrif – „Þetta eru ótrúlega klár dýr. Þau eru fljót að spila á okkur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Segir að upptaka evru myndi lækka verðbólgu en minnka sveigjanleika

Segir að upptaka evru myndi lækka verðbólgu en minnka sveigjanleika