fbpx
Sunnudagur 24.maí 2026
Fréttir

Trausti ákærður fyrir stórfelld skattsvik – Fékk feita samninga við borgina

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 9. nóvember 2020 18:00

Samsett mynd DV. Mynd af Hlíðarenda fók Anton Brink.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Annar eigandi verktakafyrirtækisins GT Verktakar hefur verið ákærður fyrir stórfelld skattsvik. Trausti Finnbogason stofnaði fyrirtækið ásamt Gísla G. Sveinbjörnssyni árið 2001. Er reksturinn stefndi í þrot sumarið 2004 var nafni fyrirtækisins breytt í G1000 ehf. G1000 var tekið til gjaldþrotaskipta árið 2017 og var kröfum lýst í búið upp á rúmlega 247 milljónir króna.

Þeir félagar stofnuðu síðan fyrirtækið  GT Hreinsun sem hreppti tvö útboð í jarðvegsvinnu fyrir borgina, þrátt fyrir kennitöluflakk og gjaldþrotasögu eigendanna. Annars vegar hlaut fyrirtækið verk að Hlíðarenda upp á tæplega 180 milljónir króna og hins vegar verkefni við frjálsíþróttavöll ÍR, upp á rúmlega 90 milljónir.

Sjá einnig: Hrepptu stór samninga við borgina í skugga 240 milljóna gjaldþrots

Í ákærunni er Trausta gefið að sök að hafa staðið skil á efnislega röngum skattframtölum fyrir GT Verktaka frá 2015 til 2018. Nema meintar vanframtaldar tekjur fyrir þessi ár tæplega 62 milljónum króna og meintur vangreiddur tekjuskattur og útsvar tæplega 27 milljónum.

Þess er krafist að Trausti verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.

Málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 13. nóvember næstkomandi.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íslenska ríkið bótaskylt vegna vítaverðrar framgöngu Tómasar í plastbarkamálinu

Íslenska ríkið bótaskylt vegna vítaverðrar framgöngu Tómasar í plastbarkamálinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hrafn sá mann „chugga“ flösku af Egils Orku

Hrafn sá mann „chugga“ flösku af Egils Orku
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Andrea segir hundaeigendur gefa of mikið nammi og það hafi vond áhrif – „Þetta eru ótrúlega klár dýr. Þau eru fljót að spila á okkur“

Andrea segir hundaeigendur gefa of mikið nammi og það hafi vond áhrif – „Þetta eru ótrúlega klár dýr. Þau eru fljót að spila á okkur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Segir að upptaka evru myndi lækka verðbólgu en minnka sveigjanleika

Segir að upptaka evru myndi lækka verðbólgu en minnka sveigjanleika