fbpx
Sunnudagur 24.maí 2026
Fókus

Morgan Freeman forvitnast um framhaldslíf

Stórmerkilegur þáttur á RÚV

Kolbrún Bergþórsdóttir
Mánudaginn 12. desember 2016 09:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Saga guðstrúar sem RÚV sýnir á mánudagskvöldum sýnist vera mikill dásemdarþáttur. Leiðsögumaður okkar í þeim þætti er leikarinn Morgan Freeman með sín góðlegu augu, sitt fallega bros og sína dásamlega rödd. Hann spyr þar stórra spurninga eins og: Hvað gerist þegar við deyjum?

Í fyrsta þætti ræddi hann við mann sem hafði drukknað en lifnað við. Viðtalið var tekið í dómkirkju og maðurinn lýsti reynslu sinni, ljósadýrðinni sem hann sá og skilaboðum sem hann fékk um að hans tími væri ekki kominn. Þetta var fallegt viðtal og við sem aldrei efumst um framhaldslíf trúðum hverju orði. Það virtist Morgan Freeman líka gera. Ég held að Freeman sé vitur maður.

Leið leikarans lá síðan lands píramídanna, Egyptalands, og svo til Mexíkó, Jerúsalem og Indlands þar sem enn var fjallað um dauðann og trúna á framhaldslíf. Ég hugsaði með mér hversu gott það væri að vera laus við útskýringar tortrygginna vísindamanna sem skilja allt jarðlegum skilningi. En einmitt þá ákvað Freeman að hitta hámenntaðan lækni sem stúderað hefur dauðareynslu manna. Sá kom á óvart þegar hann sagði að sjálfið/sálin hverfi ekki eftir dauðann. Ég var lukkuleg með þennan mann og Freeman var það greinilega líka.

Umfjöllunarefnið, trú og líf eftir dauðann, var ekki það eina sem heillaði mann við þáttinn. Þarna var líka stórbrotið umhverfi, fallegt landslag og voldugar gamlar byggingar. Á einstaka stað sáust í bakgrunni nútímalegar blokkir. Þá fór hrollur um mann. Nútíma arkitektúr er stundum voðalegt fyrirbæri. Hvernig er eiginlega hægt að skapa svo margt forljótt?

Eitt hrollvekjandi atriði var í þessum mjög svo áhugaverða þætti en þar talaði Freeman við róbót sem vill verða mennskur. Umræðurnar fóru að snúast um klónun og löngun mannsins til að fresta dauðanum. Já, maður hafði sannarlega um nóg að hugsa þegar maður horfði á þennan þátt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Hvað er hvítasunna?
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sjónvarpsstjarnan óþekkjanleg á nýjum myndum – Hefur hrakað hratt

Sjónvarpsstjarnan óþekkjanleg á nýjum myndum – Hefur hrakað hratt
Fókus
Fyrir 4 dögum

Áhrifavaldur og faðir hennar grunuð um að brugga ískyggileg launráð

Áhrifavaldur og faðir hennar grunuð um að brugga ískyggileg launráð
Fókus
Fyrir 4 dögum

Svona kemurðu í veg fyrir að barnið þitt verði narsissisti

Svona kemurðu í veg fyrir að barnið þitt verði narsissisti
Fókus
Fyrir 5 dögum

Þetta er það sem Íslendingar vilji að erlendir ferðamenn hætti að gera

Þetta er það sem Íslendingar vilji að erlendir ferðamenn hætti að gera
Fókus
Fyrir 1 viku

Hollywood-elítan sögð hafa yfirgefið Harry og Meghan: „Þau halda aldrei að vandinn sé hjá þeim sjálfum“

Hollywood-elítan sögð hafa yfirgefið Harry og Meghan: „Þau halda aldrei að vandinn sé hjá þeim sjálfum“
Fókus
Fyrir 1 viku

Hjartaskurðlæknir varar við mat sem margir borða daglega: „Eyðileggur hjartað hægt og rólega“

Hjartaskurðlæknir varar við mat sem margir borða daglega: „Eyðileggur hjartað hægt og rólega“