fbpx
Sunnudagur 24.maí 2026
Fréttir

Þetta vitum við um atvikin á Hafnarbraut í dag

Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 24. maí 2026 19:24

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan hefur í dag rannsakað alvarleg atvik í fjölbýlishúsi við Hafnarbraut á Kársnesi, Kópavogi, en atvikin hafa vakið töluverðan óhug fólks, ekki síst vegna óvissu fram eftir degi um hvað hefði átt sér stað. Gilti það meðal annars um íbúa í stigaganginum, sem ekki gátu fengið að vita hvað hefði gerst en var sagt að halda kyrru fyrir á heimilum sínum eftir að lögregla afgirti svæði í kringum húsið.

Sjá einnig: Blóð á húsinu – „Þetta er mjög óþægilegt“

Núna liggur fyrir að enginn lét lífið en maður sem var leiddur burtu í járnum frá vettvanginum er grunaður um að hafa skotið annan mann í höndina. Sá maður var fluttur á sjúkrahús og eru áverkar hans ekki taldir lífshættulegir.

Atvikin komu íbúa í húsinu, sem DV ræddi við, í opna skjöldu, og sagði viðkomandi að ekkert hefði verið í gangi sem gaf vísbendingu um að atvik sem þetta gæti verið í vændum. Segir íbúinn að rólegt hafi verið í stigaganginum og lítið um ónæði.

DV hefur ekki upplýsingar um þjóðerni þeirra manna sem í hlut áttu en tveir íbúar í húsinu sem rætt var við í dag eru Íslendingar.

Lögregla naut aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra við aðgerðir í dag. Um tíma voru sex lögreglubílar og þrír sérsveitarbílar á vettvangi auk tveggja sjúkrabíla. Einnig var eitthvað um ómerkta lögreglubíla. Er leið á daginn minnkaði viðbúnaður lögreglu en tæknideild hélt áfram störfum.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Hvað er hvítasunna?
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íslenska ríkið bótaskylt vegna vítaverðrar framgöngu Tómasar í plastbarkamálinu

Íslenska ríkið bótaskylt vegna vítaverðrar framgöngu Tómasar í plastbarkamálinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hrafn sá mann „chugga“ flösku af Egils Orku

Hrafn sá mann „chugga“ flösku af Egils Orku
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Andrea segir hundaeigendur gefa of mikið nammi og það hafi vond áhrif – „Þetta eru ótrúlega klár dýr. Þau eru fljót að spila á okkur“

Andrea segir hundaeigendur gefa of mikið nammi og það hafi vond áhrif – „Þetta eru ótrúlega klár dýr. Þau eru fljót að spila á okkur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Segir að upptaka evru myndi lækka verðbólgu en minnka sveigjanleika

Segir að upptaka evru myndi lækka verðbólgu en minnka sveigjanleika