fbpx
Sunnudagur 24.maí 2026
Fréttir

Atvikið í Kópavogi: Blóð á húsinu – „Þetta er mjög óþægilegt“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 24. maí 2026 16:01

Aðsend mynd frá komu sjúkrabíla á vettvang.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögregla á vettvangi rannsakar nú alvarlegt atvik sem átti sér stað í fjölbýlishúsi við Hafnarbraut á Kársnesi, Kópavogi, í hádeginu í dag. Viðbúnaður hefur minnkað á vettvangi frá því sem áður var en tæknideild er enn að störfum.

„Ég varð í raun bara vör við þetta í kjölfarið, ég var ekki heima þegar þetta var í gangi,“ segir kona sem býr í sama stigagangi og hið óþekkta, alvarlega atvik átti sér stað.

„En þegar ég kom heim var lögreglulokun í gangi og lögreglan er ennþá hér,“ sagði konan í viðtali við DV, laust eftir kl. 15:30 í dag.

Sjá einnig: Alvarlegt atvik í Kópavogi

Hún segist hafa komist inn í húsið í gegnum bílakjallara því hann var ekki lokaður. „Ég ræddi síðan við nágrannakonu mína og þá kom lögreglumaður að og sagði okkur að við séum á lokuðu lögreglusvæði og biður okkur um að fara inn til okkar. Hann segir bara að það sé lögregluaðgerð í gangi en við fáum engar upplýsingar. Mér skilst að íbúar viti bara mjög takmarkað um hvað gerðist.“

Konan segir að maður hafi verið leiddur í járnum burtu frá húsinu. Hún segir ennfremur að blóð sé utan á húsinu.

„Það er blóð á húsinu, það er það eina sem ég veit,“ sagði konan við spurningu DV um hvort hún viti eitthvað um hvað hafi gerst. „Þetta er mjög óþægilegt,“ bætti við hún.

Kona segir að atvik sem kalli á stóra lögregluaðgerð sé ekki eitthvað sem hún hefði getað átt von á, þetta sé rólegt hús.

„Þetta kemur mér á óvart, ég hef ekki heyrt nein læti eða partýstand eða nokkuð annað sem hefði verið hægt að draga þessa ályktun af. En ég bara veit ekki neitt, sko.“

Uppfært kl. 16:10 – Blóðugur maður í bakaríi

Vísir greinir frá því að maður hafi gengið blóðugur inn í bakaríið Brikk við Hafnarbraut á Kársnesi, Kópavogi, upp úr hádegi í dag, með handklæði vafið um særða hönd. Sagðist hann hafa verið skotinn í höndina. Á kaffihúsinu var hringt á sjúkrabíl fyrir manninn. Skömmu síðar kom lögregla á staðinn en hlúð var að manninum í sjúkrabíl fyrir utan.

Á sama tíma og þessu fór fram stóð yfir umfangsmikil aðgerð lögreglu og sérsveitar í fjölbýlishúsi í götunni.

Uppfært kl. 17:40

RÚV greinir frá því að maður hafi verið fluttur á slysadeild með hugsanlega skotáverka og annar handtekinn í aðgerðum lögreglu við Hafnarbraut í dag. Grunur er um að sá handtekni hafi skotið hinn í höndina.

Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn á rannsóknarsviði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir að lögregla hafi fundið skotvopn á vettvangi en ekki sé staðfest að það sé vopnið sem var beitt. Rannsókn málsins sé í fullum gangi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þarf að borga fyrir fráveituna þótt húsið sé ekki tilbúið

Þarf að borga fyrir fráveituna þótt húsið sé ekki tilbúið
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sammála um að heilbrigðiseftirlitið eigi ekki að hafa neitt um Reykjavíkurflugvöll að segja – Vinnsla nýs starfsleyfis hefur tekið tvö ár

Sammála um að heilbrigðiseftirlitið eigi ekki að hafa neitt um Reykjavíkurflugvöll að segja – Vinnsla nýs starfsleyfis hefur tekið tvö ár
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Leita til Byggðastofnunar vegna löggæslu í Grímsey og Hrísey

Leita til Byggðastofnunar vegna löggæslu í Grímsey og Hrísey
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þetta voru meðaleinkunnir stúdenta skólaársins 2023-2024 við lok grunnskóla – Sundurliðað eftir einstaka skólum

Þetta voru meðaleinkunnir stúdenta skólaársins 2023-2024 við lok grunnskóla – Sundurliðað eftir einstaka skólum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Segir að upptaka evru myndi lækka verðbólgu en minnka sveigjanleika

Segir að upptaka evru myndi lækka verðbólgu en minnka sveigjanleika
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Inga hlynnt því að framhaldsskólar byrji ekki of snemma á morgnana

Inga hlynnt því að framhaldsskólar byrji ekki of snemma á morgnana