

Real Madrid fylgist grannt með stöðu Erling Haaland hjá Manchester City.
Samkvæmt heimildum eru Madrídingar tilbúnir að bregðast hratt við ef einhver merki koma fram um að framherjinn vilji yfirgefa félagið, sérstaklega í kjölfar þess að Pep Guardiola er á förum.
Haaland, sem er 25 ára, hefur verið lykilmaður hjá City og skorað 38 mörk á tímabilinu, en talið er að hann sé ekki fullkomlega sáttur þrátt fyrir árangur liðsins.
Real Madrid vill styrkja hópinn eftir titlalaust tímabil og lítur á Haaland sem draumakaup.
Manchester City mun þó berjast gegn öllum tilraunum til að fá Norðmanninn, enda skrifaði hann undir langtímasamning árið 2025 sem gildir til ársins 2034.
Þrátt fyrir það gæti sumarið orðið áhugavert ef óvissa skapast í kringum framtíð hans.