
Neyðarlenda þurfti farþegavél frá Jet2, í flugi frá Tenerife til Birmingham á Englandi, í Portúgal eftir að einn flugmanna vélarinnar veiktist hastarlega í miðju flugi.
Canarian Weekly greinir frá þessu en atvikið átti sér stað á fimmtudag í síðustu viku.
Fjölmiðillinn hefur hefur eftir farþegum að vélin hafi skyndilega misst hæð og áhöfn hafi kallað eftir því hvort þjálfað heilbrigðisstarfsfólk væri að finna á meðal farþega um borð. Sjónarvottar segja að skelfing hafi gripið um sig um borð í flugvélinni en snúa tókst vélinni til Porto í Portúgal og lenda henni þar. Þar kom sjúkralið um borð, hlúði að veika flugmanninum og flutti hann á sjúkrahús.
Farþegum var síðar greint frá því að flugmaðurinn hefði fengið hjartaáfall. Í yfirlýsingu frá Jet2 segir: „Á engum tímapunkti var öryggi teflt í tvísýnu og viðskiptavinir héldu síðan ferð sinni áfram.“
Farþegar vélarinnar urðu að bíða í 13 klukkustundir í Portúgal áður en ný áhöfn tók til starfa um borð og hægt var að halda ferðinni til Birmingham áfram.