fbpx
Sunnudagur 24.maí 2026
Fréttir

Ragnar Freyr opnar sig um brottreksturinn: „Ég þurfti að láta hann endurtaka þetta nokkrum sinnum“

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 24. maí 2026 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hinn landsþekkti læknir, Ragnar Freyr Ingvarsson, er í ítarlegu í viðtali við Samstöðina þar sem hann rifjar upp uppsögn sína úr starfi á Landspítalanum fyrir um sex vikum, en málið hefur verið töluvert í fjölmiðlum. Ragnar segir uppsögnina hafa komið sér gjörsamlega í opna skjöldu og er hann fékk símtalið örlagaríka hélt hann að verið væri að kalla sig til starfa úr launalausu leyfi.

„Ég er búinn að vera í launalausu leyfi frá Landspítalanum í rétt rúma tvo mánuði og búinn að vera með smá samviskubit yfir því að hafa óskað eftir þessu leyfi og fengið það vegna þess að maður skilur þá eftir vinnufélagana með þau krefjandi verkefni sem þar eru. En það hafði verið mjög mikið að gera á árunum áður og mér fannst ég – þar sem ég stóð á þessum tímamótum, á fimmtugu – eiga það skilið að bakka aðeins til baka og rækta sjálfan mig aðeins meira og vinna örlítið minna, sinna fjölskyldunni ögn betur og svona. En ég bjóst við því þegar ég áttaði mig á því hver var þarna að hringja að það væri verið að kalla mig úr fríi, úr þessu leyfi.“

Símtalið átti sér stað undir lok vinnudags en í símanum var yfirmaður Ragnars, framkvæmdastjóri bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu Landspítala (BLE). Ragnar var nær agndofa af undrun yfir erindi yfirmannsins:

„Hann hringir laust fyrir klukkan sex og ég hringi aftur til baka, ég sat á hestbaki þegar hann hringir, þannig að ég gat ekki svarað honum. Og hann gengur bara skorinort til verks og segir mér það að það sé bara verið að leggja starf mitt niður og þess vegna sé mér sagt upp störfum. Ég þurfti að láta hann endurtaka þetta nokkrum sinnum, þetta kom svo flatt upp á mig, þetta var þveröfugt við það sem ég bjóst við að heyra. Og hann segir mér að þetta sé vegna þessarar aðhaldskröfu sem spítalinn sé undir. Hún sé stór og mikil og það þurfi að fara í mjög róttækar skipulags- og aðhaldsaðgerðir.

Engum öðrum verið sagt upp

Ragnar segist lítið hafa orðið var við boðaðar aðhaldsaðgerðir. Engum öðrum lækni hafi verið sagt upp. Boðað hafi verið að fækka læknum í hlutastörfum, en Ragnar var í þriðjungsstarfshlutfalli hjá spítalanum, en ekkert hafi orðið úr því ennþá. Auk þess hafi honum verið boðið starfið aftur á fundi nokkru eftir uppsögnina, en einungis ef hann færi í hærra starfshlutfalli. Ef marka má orð Ragnars í viðtalinu er erfitt að sjá hvaða sparnaður og aðhald er að eiga sér stað hjá spítalanum:

„Það hefur ekki fundist annar læknir sem hefur verið sagt upp störfum í þessum umfangsmiklu aðgerðum, ég hef ekki heyrt af neinum öðrum starfsmanni af spítalanum. Það virðist sem svo að spítalinn ætli að ná markmiðum sínum með þessu endurskipulagi og aðhaldi með því að segja upp einum manni í launalausu leyfi. Það segir kannski meira en nokkuð um óstjórnina sem ríkir hjá þessari stofnun að þetta þyki lógísk og góð niðurstaða.“

Ragnar segir ennfremur:

„Spítalinn vill meina að þetta sé fullkomlega rökrétt ákvörðun, að þarna sé einfaldlega verið að leggja niður starf í sparnaðarskyni, en að sama skapi er mér þá boðið það starf til baka, á þessum fundi nokkrum dögum síðar þá var mér sagt að starfið mitt væri lagt niður nema að ég kæmi í það aftur og þá í auknu starfshlutfalli. Sem kemur nú pínu spánskt fyrir sjónir, það er þá morgunljóst að það er ekki verið að leggja niður neitt starf, það stendur mér til boða. Og ekki nóg með það, það stóð öðrum til boða og starfið er unnið nú þegar af öðrum læknum núna, það þarf einhver að manna þær vaktir sem ég áður mannaði. Þannig að starfið fór ekki neitt. Það eru aðalrök spítalans, þessar aðhaldsaðgerðir, en aftur eins og ég sagði: það hefur ekkert bólað þeim aðgerðum, ég hef ekki heyrt af neinum öðrum.“

Þetta er aðeins lítið brot af því sem kemur fram í viðtalinu en þar ræðir Ragnar um heilbrigðiskerfið vítt og breitt og greinir frá persónulegum málum. Viðtalið er í spilaranum hér fyrir neðan:

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Tveir menn stálu skartgripum fyrir milljónir af heimili í Hafnarfirði

Tveir menn stálu skartgripum fyrir milljónir af heimili í Hafnarfirði
Fréttir
Í gær

Rauðblesótt tryppi gengur laust við þjóðveg 1 – Lögregla biður eigandann að gefa sig fram

Rauðblesótt tryppi gengur laust við þjóðveg 1 – Lögregla biður eigandann að gefa sig fram
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Leggja fram kvörtun vegna framferðis Creditinfo

Leggja fram kvörtun vegna framferðis Creditinfo
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Risasekt og fangelsisdómur Eiríks staðfestur í Landsrétti – Hefur fjórar vikur til að borga

Risasekt og fangelsisdómur Eiríks staðfestur í Landsrétti – Hefur fjórar vikur til að borga
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nauðgun sögð ósönnuð þótt ákærði hafi verið margsaga en brotaþoli trúverðug – „Stopp, ég vil ekki gera þetta“

Nauðgun sögð ósönnuð þótt ákærði hafi verið margsaga en brotaþoli trúverðug – „Stopp, ég vil ekki gera þetta“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Risasekt rafrettukónga lækkuð í Landsrétti – Smygluðu gífurlegu magni af sígarettum

Risasekt rafrettukónga lækkuð í Landsrétti – Smygluðu gífurlegu magni af sígarettum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Morgunblaðið segir fjölgun öryrkja mikið áhyggjuefni – „Vinnan göfgar manninn“

Morgunblaðið segir fjölgun öryrkja mikið áhyggjuefni – „Vinnan göfgar manninn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vendingar í sérstæðu sakamáli frá árinu 2014 – Ákærður fyrir að frelsissvipta og misþyrma konu

Vendingar í sérstæðu sakamáli frá árinu 2014 – Ákærður fyrir að frelsissvipta og misþyrma konu