

Björn Þorfinnsson, fjölmiðlamaður og skákmeistari, og Tómas Steindórsson, útvarpsstjarna og körfuboltasérfræðingur, mættu til Helga Fannars Sigurðssonar í Íþróttavikuna.
Hearts tapaði skoska meistaratitlinum á grátlegan hátt til Celtic í lokaleik deildarinnar á dögunum. Liðið vann hefðbundna deildarkeppni fyrir tvískiptingu en fékk samt hreinan úrslitaleik við Celtic á útivelli.
„Það er svo fáránlegt, hvernig getur það gerst að þeir vinni deildina, fyrir skiptingu, og endi á útileik? Af hverju spila þeir ekki lokaleik á heimavelli hafandi unnið deildina?“ sagði Björn hissa.
„Þetta var ótrúlega leiðinlegt. Og svo varð umdeild vítaspyrna til þess að Celtic var enn í séns í lokaumferðinni.“
Tómas telur að því miður muni Hearts, með Tómas Bent innanborðs, ekki vera í baráttunni á næstu leiktíð. „Þetta var sénsinn, þetta verður ekki svona á næsta tímabili,“ sagði hann.
„En þetta er ótrúlega skemmtilegt verkefni, hvernig þeir eru að sækja menn út frá einhverjum gögnum og þess háttar,“ sagði Björn að endingu.
Nánar í spilaranum.