fbpx
Sunnudagur 24.maí 2026
Pressan

Svona lengi á fólk að sofa á hverri nóttu miðað við aldur

Pressan
Sunnudaginn 24. maí 2026 13:30

Það er mikilvægt að sofa nóg. Mynd: Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svefn er ein af grunnstoðunum í vellíðan okkar. Hann hjálpar líkamanum við að hlaða batteríin, heilanum að starfa og skapið verður stöðugra. En þurfa allir að sofa jafn mikið?

Ekki alveg því svefnþörfin breytist með aldrinum og er einstaklingsbundin.

Það „slökknar“ ekki á líkamanum á nóttunni, þvert á móti. Hann notar tímann til að gera við ákveðna vefi, kemur jafnvægi á minni, kemur hormónunum í jafnvægi og leggur sitt af mörkum til að halda tilfinningunum í jafnvægi.

Ónógur svefn getur orsakað þreytu, erfiðleika við að einbeita sér, , pirringi eða tilfinningu um andlega þoku.

Góður svefn getur hjálpað þér við að finnast þú orkumeiri, skýrari í kollinum og jarðbundnari.

Kornabörn og börn

Svefn gegnir mikilvægu hlutverki varðandi vöxt og þróun heilans hjá börnum.

Almennt er mælt með eftirfarandi svefnlengd fyrir hina ýmsu aldurshópa barna:

0 til 3 mánaða – 14 til 17 klukkustundir.

4 til 11 mánaða – 12 til 15 klukkustundir.

1 til 2 ára – 11 til 14 klukkustundir.

3 til 5 ára – 10 til 13 klukkustundir.

6 til 13 ára – 9 til 11 klukkustundir.

Langur nætursvefn og góðir blundar á þessum árum hjálpa börnunum við að læra hluti og við þroska taugakerfisins.

Unglingar

Unglingar hafa þörf fyrir að sofa mikið. Sérfræðingar mæla almennt með 8 til 10 klukkutíma nætursvefni fyrri 14 til 17 ára. En vandinn er að á þessum aldri breytist innra úr unglinganna oft. Margir vilja fara seint í rúmið en þurfa að vakna snemma til að fara í skólann. Þetta veldur því oft að unglingarnir sofa ekki nógu mikið.

Fullorðnir

Fyrir fullorðna á aldrinum 18 til 64 ára er almennt mælt með 7 til 9 klukkustunda nætursvefni. Eftir 65 ára aldurinn er þörfin oft 7 til 8 klukkustundir. Svefninn verður oft léttari og fólk vaknar oft á nóttunni eða fer fyrr að sofa en áður. Þetta þýðir ekki endilega að svefninn sé slæmur, frekar að svefnmynstrið breytist í gegnum lífið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Svona er hægt að halda eggjum ferskum í eitt ár

Svona er hægt að halda eggjum ferskum í eitt ár
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Svona er hægt að kæla hvítvín á nokkrum mínútum

Svona er hægt að kæla hvítvín á nokkrum mínútum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Mun deyja í fangelsi vegna þess sem hann gerði bróður sínum og fjölskyldu hans

Mun deyja í fangelsi vegna þess sem hann gerði bróður sínum og fjölskyldu hans
Pressan
Fyrir 3 dögum

Vildi prófa ákveðna stillingu í Teslunni sinni – Það endaði ekki vel

Vildi prófa ákveðna stillingu í Teslunni sinni – Það endaði ekki vel