
Það er mikilvægt að fara reglulega yfir hvað er í honum til að viðhalda einhverju skipulagi og um leið koma í veg fyrir matarsóun.
Ef þú ert ekki viss um hvar á að byrja þá segir Real Simple að eftirfarandi eigi að henda strax.
Dularfullir hlutir – Whitney Cardosi, næringarfræðingur og höfundur matreiðslubóka, segir að henda eigi dularfullum, óþekktum hlutum í frystinum beint í ruslið. „Ef það er enginn miði eða þetta er með frostskaða, þá ráðlegg ég fólki að henda því,“ sagði hún í samtali við Real Simple.
Hún sagði að góð þumalfingurregla sé að tilbúnir afgangar og tilbúnir réttir séu notaðir innan þriggja mánaða. Hrátt kjöt og grænmeti geymist yfirleitt í sex til tólf mánuði ef það er geymt á réttan hátt.
Hún ráðleggur fólki að nota túss til að merkja og dagsetja það sem er sett í frystinn. Með því sé auðveldara að finna það tryggja að ekkert gleymist.
Útrunninn matur
Það virðist liggja í augum uppi að það eigi að henda útrunnum mat úr ísskápnum en margir eru með löngu útrunninn mat í frystinum. Shantae Duckworth, sérfræðingur á þessu sviði, sagði að þetta þýði að það eigi að henda matnum strax.
Næstum tóm ísbox
Næstum tóm ísbox enda oft í frystinum og daga uppi. Þau gera ekkert annað en að taka pláss sem væri hægt að nota mun skynsamlegar.
Stórinnkaup
Ef þú hefur keypt mat í stórum umbúðum, til dæmis grænmetisblöndur, þá er hægt að nota þær til að prófa nýjar uppskriftir ef það er ekki komið fram yfir síðasta neysludag. En ef síðasti neysludagur er dagur í fortíðinni, þá er rétt að henda matnum.
Gömul ílát
Geymsluílátin hafa ákveðinn endingartíma, eins og maturinn. Ef þú tekur eftir því að ílátið er farið að springa eða er orðið skakkt, þá heldur það matnum líklega ekki ferskum. Hentu því og keyptu nýtt.