fbpx
Sunnudagur 24.maí 2026
Pressan

Af hverju eru flestar bakteríur á þessu flugvélasæti?

Pressan
Sunnudaginn 24. maí 2026 18:30

Hvaða sæti ætli hún eigi að sitja í?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Að ferðast með flugvél þýðir að maður situr í lokuðu rými með fullt af öðru fólki í margar klukkustundir. Yfirleitt er þetta þægilegt og jafnvel spennandi fyrir suma en sérfræðingar benda á að val á sæti geti skipt máli hvað varðar að komast í snertingu við bakteríur um borð í flugvélinni.

Margir sérfræðingar í smitsjúkdómum segja að sætin við ganginn séu þau þar sem mesta hættan sé að komast í snertingu við aðra farþega. Jarod Fox, smitsjúkdómalæknir hjá Orlando Health, segir að þegar setið sé í þessum sætum sé fólk mjög nálægt þeim sem ganga um farþegarýmið. Fólk fer á klósettið, sækir farangur í hólfin fyrir ofan sætin eða gengur bara um til að teygja aðeins úr fótunum.

Ashley Drews, farsóttafræðingur á Houston Methodist sjúkrahúsinu, segir að þegar setið er í þessum sætum komist fólk oft í snertingu við þá sem ganga um vélina. Rannsókn, sem var gerð af vísindamönnum við Emroy háskólann, leiddi í ljós að um 40% flugfarþega standa upp að minnsta kosti einu sinni á meðan á fluginu stendur og tæplega 20% standa upp oftar en einu sinni.

Sérfræðingar leggja áherslu á að mesta hættan tengist ekki aðeins sætinu, heldur aðallega hversu nálægt smituðum einstaklingi maður er. Að sitja við hliðina á smituðum einstaklingi eykur hættuna meira en að sitja í gluggasætinu. Sæti við hliðina á, fyrir framan eða aftan smitaðan einstakling geta verið opnari fyrir smiti  því um beina og langvarandi nærveru er að ræða.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Hvað er hvítasunna?
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Skoðaði „fullorðinssíðu“ – Trúði ekki eigin augum þegar hann sá sjálfan sig þar

Skoðaði „fullorðinssíðu“ – Trúði ekki eigin augum þegar hann sá sjálfan sig þar
Pressan
Í gær

Nýjar ESB-reglur fyrir farsíma – Verða að hafa nýja virkni frá næsta ári

Nýjar ESB-reglur fyrir farsíma – Verða að hafa nýja virkni frá næsta ári
Pressan
Í gær

Svona er hægt að kæla hvítvín á nokkrum mínútum

Svona er hægt að kæla hvítvín á nokkrum mínútum
Pressan
Í gær

Læknar segja að fólk eigi aldrei að fara í háttinn með blautt hár

Læknar segja að fólk eigi aldrei að fara í háttinn með blautt hár
Pressan
Fyrir 2 dögum

Prestur sem boðið hefur afhommunarmeðferðir klæmdist við 14 ára dreng og bauð honum til sín

Prestur sem boðið hefur afhommunarmeðferðir klæmdist við 14 ára dreng og bauð honum til sín
Pressan
Fyrir 2 dögum

Spilaði tölvuleiki í beinni útsendingu til að safna fyrir krabbameinsmeðferð barnabarnsins – Síðan ruddist sérsveitin inn

Spilaði tölvuleiki í beinni útsendingu til að safna fyrir krabbameinsmeðferð barnabarnsins – Síðan ruddist sérsveitin inn