fbpx
Sunnudagur 24.maí 2026
Pressan

Ný rannsókn um tengsl sódavatns og þyngdartaps

Pressan
Sunnudaginn 24. maí 2026 12:30

Sódavatnsvélar eru til á mörgum vinnustöðum og heimilum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það getur verið mikill unaður að fá sér kalt sódavatn í erli dagsins. Það er svalandi og mörgum finnst það hressa þá vel við. Margir velja sódavatn í von um að það sé hollara en að drekka gosdrykk og að það geti hjálpað til við að halda aftur af hraðferð baðvogarinnar upp á við þegar stigið er á hana. En hefur sódavatnið, gosið því, einhver áhrif á líkamann?

ScienceDaily segir að miðað við rannsókn, sem var birt í BMJ Nutrition, Prevention & Health, geti kolsýrt vatn haft smávægileg áhrif á hvernig líkaminn tekst á við sykur.

Þegar líkaminn tekur kolsýruna upp, getur það breytt blóðinu örlítið og hugsanlega gert líkamann aðeins betri í að nota glúkósa.  En áhrifin eru ekki mikil. Það magn glúkósa, sem verður hugsanlega fyrir áhrifum, er svo lítið að það getur varla haft nein áhrif á þyngdartap.

Akira Takahashi, vísindamaður, segir að þyngdarstjórn byggist á að hafa stjórn á mataræðinu og að hreyfa sig. Það að drekka sódavatn breyti þessu ekki eitt og sér.

Vísindamenn segja að frekari rannsókna sé þörf á þessu sviði og að sódavatn geti verið hluti af heilbrigðum lífsstíl en sé ekki leiðin til þyngdartaps.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Svona er hægt að kæla hvítvín á nokkrum mínútum

Svona er hægt að kæla hvítvín á nokkrum mínútum
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Læknar segja að fólk eigi aldrei að fara í háttinn með blautt hár

Læknar segja að fólk eigi aldrei að fara í háttinn með blautt hár
Pressan
Fyrir 4 dögum

Borin kennsl á líkamsleifar sex ára drengs sem hvarf árið 2022

Borin kennsl á líkamsleifar sex ára drengs sem hvarf árið 2022
Pressan
Fyrir 4 dögum

Bótasvikari dæmd í fangelsi – Sagðist ekki geta gengið en keppti svo í 10 kílómetra hlaupi

Bótasvikari dæmd í fangelsi – Sagðist ekki geta gengið en keppti svo í 10 kílómetra hlaupi